Umfjöllun: Ísland spilaði í 45 mínútur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. ágúst 2009 17:13 Grétar Rafn gefur fyrir í kvöld. Mynd/Anton
Leikur íslenska landsliðsins gegn Slóvökum á Laugardalsvelli í kvöld var eins og svart og hvítt. Lokatölur 1-1. Fyrri hálfleikur hjá íslenska liðinu var hreinasta hörmung og leikmönnum liðsins til skammar. Þeir voru ekki mættir til leiks, nenntu ekki að berjast né hlaupa eins og menn. Var átakanlegt að fylgjast með and- og áhugaleysi leikmanna. Maður spurði sig að því til hvers þessir menn voru yfir höfuð mættir í þennan leik? Gunnleifur bjargaði liðinu vel í tvígang en réð ekki við þrumufleyg Robert Vittek. Slóvakar því marki yfir í hálfleik. Leikur íslenska liðsins gat ekki versnað í síðari hálfleik. Sem betur fer girtu menn sig í brók í síðari hálfleik og fóru að spila fótbolta eins og menn. Íslenska liðið var talsvert betri aðilinn og uppskar sanngjarnt jöfnunarmark á 59. mínútu. Þá stangaði Kristján Örn Sigurðsson boltann í netið eftir góða hornspynu Pálma Rafns. Þrátt fyrir ágæta tilburði það sem eftir lifði leiks náði íslenska liðið ekki að skora annað mark. Að sama skapi var liðið heppið að tapa ekki leiknum þegar Brynjar Björn gaf Slóvökum boltann og um leið dauðafæri sem þeir glutruðu á ótrúlegan hátt. Jafntefli niðurstaðan í leik sem Ísland spilaði aðeins í 45 mínútur en slapp samt með jafntefli. Meira átti liðið ekki skilið og það getur í raun þakkað Gunnleifi fyrir að hafa ekki tapað leiknum. Ísland-Slóvakía 1-1 0-1 Robert Vittek (35.) 1-1 Kristján Örn Sigurðsson (59.) Áhorfendur: 5.099Dómari: Lars Christoffersen 7. Skot (á mark): 10-12 (4-6)Varin skot: Gunnleifur 5 – Jan 3Horn: 6-7Aukaspyrnur fengnar: 9-10Rangstöður: 5-3 Nánari umfjöllun og einkunnagjöf leikmanna má finna í Fréttablaði morgundagsins.
Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Fleiri fréttir Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Sjá meira