Brynjar Björn: Vel ásættanleg úrslit Smári Jökull Jónsson skrifar 12. ágúst 2009 22:48 Brynjar Björn Gunnarsson. Mynd/Arnþór
Brynjar Björn Gunnarsson leikmaður Reading var fyrirliði íslenska liðsins í kvöld og átti ágætan leik. Hann lék á miðjunni í fyrri hálfleiknum en snemma í síðari hálfleik var hann færður í vörnina í stað Sölva Geirs Ottesen og leysti það hlutverk vel af hendi. "Ég held að þetta séu vel ásættanleg úrslit. Við vildum auðvitað vinna leikinn sem tókst kannski ekki í dag en við komum vel til baka eftir að þeir komust yfir og vorum í sjálfu sér meira inni í leiknum. Við getum í sjálfu sér sætt okkur við þessi úrslit, miðað við að þeir eru efstir í sínum riðli og jafnvel á leið á HM," sagði Brynjar Björn í samtali við Vísi eftir leik. "Það voru engir tilburðir í fyrri hálfleik. Við vorum að þreifa okkur áfram, vorum búnir að tapa nokkrum leikjum fyrir þennan leik og byrjuðum á því að prófa aðeins það sem talað var um fyrir leikinn. Það gekk ágætlega, fyrir utan eina skiptið sem þeir opnuðu okkur. Þá hreinsa þeir fram, boltinn fer inn á miðjuna og þeir komast í þremur eða fjórum sendingum að okkar vítateig. Svo kláraði hann færið auðvitað mjög vel," bætti Brynjar við. Íslenska liðið náði að jafna metin í síðari hálfleik og voru allt eins líklegir til að ná inn öðru marki fyrir leikslok. "Við vorum sennilega líklegri en þeir til að vinna leikinn. Við pressuðum þá vel og okkur fannst ganga vel hjá okkur í seinni hálfleik. Við komumst nokkuð oft upp kantana en fyrirgjafirnar hefðu oft mátt vera betri eða þá fleiri inni í teignum til að komast í sendingarnar," sagði Brynjar sem er kominn á fullt með Reading í ensku 1.deildinni og langt og strangt tímabil framundan. "Undirbúningurinn hjá okkur gekk vel, fyrsti leikurinn endaði með markalausu jafntefli, en það eru 45 leikir eftir þannig að það er nægur tími framundan. Útlitið er ágætt en það kemur í ljós eftir 8-10 leiki hvernig liðin eiga eftir að plumma sig. Það eru væntingar í garð liðsins, væntingar til þess að við séum allavega í toppbaráttunni," sagði Brynjar Björn að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Íslenski boltinn Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Fleiri fréttir Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Sjá meira