Dapurlegt að vinnugögn leki til fjölmiðla Sigríður Mogensen skrifar 14. ágúst 2009 12:52 Steingrímur J. Sigfússon segir grátlega lítið vanta upp á breiða samstöðu. Mynd/ Vilhelm.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ákaflega dapurlegt að viðkvæm vinnugögn sem búið var að samþykkja að trúnaður ríkti um, skuli lekið í fjölmiðla. Ekki sé búið að kynna breytingartillögur fjárlaganefndar fyrir Bretum og Hollendingum. Hann segir grátlega lítið vanta upp á breiða samstöðu um málið á Alþingi. Margir þingmenn telja að rekja megi lekann á breytingartillögum á ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinganna til Morgunblaðsins í gær til Framsóknarflokksins. Mikil reiði og vantraust ríkir milli þingmanna vegna málsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við fréttastofu rétt fyrir fréttir að það væri algjör vitleysa að rekja mætti leka á þessum upplýsingum til framsóknarmanna. Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna höfðu vonast til þess að hægt yrði að ljúka umfjöllun um málið í fjárlaganefnd í gær. Nefnd lögfræðinga var fengin til að smíða breytingartillögurnar með lagalegum og efnahagslegum fyrirvörum. Eiríkur Tómasson, veitti nefndinni forystu, en hann hefur lýst efasemdum um ábyrgð Íslendinga gagnvart Icesave. Þá átti Helgi Áss Grétarsson einnig sæti í nefndinni en hann er hluti af Indefence hópnum og er einnig bróðir Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingflokksformanns Vinstri grænna, sem einnig hefur lýst yfir efasemdum um samninginn. Fulltrúar í fjárlaganefnd kynntu stöðu málsins fyrir þingflokkunum rétt fyrir kvöldmat í gær og kom þá í ljós að þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna fannst fyrirvararnir ekki ganga nægjanlega langt. Fjárlaganefnd hittist svo aftur um klukkan átta í gærkvöld og fundaði þar til klukkan var langt gengin tvö í nótt án þess að niðurstaða fengist. Þingflokksfundir hófust klukkan hálftíu í morgun og hefst fundur hjá fjárlaganefnd klukkan eitt í dag þar sem stjórnarmeirihlutinn stefnir að því að afgreiða málið út úr nefndinni.. Í breytingartillögunum er gert ráð fyrir að ekki verði gerð aðför að eignum íslenska ríkisins sem séu nauðsynlegar til að landið haldi fullveldi sínu. Það sama eigi við um eignir ríkisins erlendis, þar með talið eignir Seðlabankans. Þá sé hvergi haggað við yfirráðum Íslands yfir auðlindum landsins. Í lagalegum fyrirvörum kemur fram að ekki hafi fengist leyst úr því álitaefni hvort aðildarríki EES samningsins beri, við kerfishrun á fjármálamarkaði, ábyrgð gagnvart innistæðueigendum vegna lágmarkstryggingar. Fáist síðar úr því skorið að ríki beri ekki slíka ábyrgð skulu fara fram viðræður að nýju. Í efnahagslegum viðmiðum er tekið fram að greiðslubyrði ríkissjóðs skuli ekki vera umfram 3,5% af vergri landsframleiðslu hvers árs. Innan Samfylkingarinnar óttast menn að þessi fyrirvari þýði í raun að samningnum sé hafnað af hálfu Íslands. Þar með séu allar áætlanir stjórnvalda um uppbyggingu efnahagslífsins í uppnámi. Verði þessi fyrirvari hins vegar áfram í frumvarpinu eru taldar miklar líkur á að Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfingin muni greiða atkvæði með frumvarpinu en að Framsóknarflokkurinn muni ekki greiða atkvæði með málinu sama hvaða fyrirvarar verði settir þar inn. Stjórnarflokkarnir telja sig hafa meirihluta fyrir málinu jafnvel þótt fyrirvarinn um tiltekna landsframleiðslu verði mildaður eins og Samfylkingarþingmenn vilja. Þó er talið að Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, muni þá greiða atkvæði gegn frumvarpinu en óvissa ríkir um afstöðu Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra. Heimildir fréttastofu herma að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir muni greiða atkvæði með frumvarpinu.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Sjá meira