Trúnaðarbrestur milli flokksformanna á Alþingi 14. ágúst 2009 12:26 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Trúnaðarbrestur er milli forystumanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi vegna ítrekaðs leka á trúnaðarupplýsingum, nú síðast vegna Icesave. Stefnt er að því að afgreiða Icesave-frumvarpið úr fjárlaganefnd í dag. Tvísýnt er um hvort Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfing standi að málinu með stjórnarflokkunum en fullvíst talið að Framsóknarflokkurinn verði á móti. Margir þingmenn telja að rekja megi lekann á breytingartillögum á ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinganna til Morgunblaðsins í gær til Framsóknarflokksins. Mikil reiði og vantraust ríkir milli þingmanna vegna málsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við fréttastofu rétt fyrir fréttir að það væri algjör vitleysa að rekja mætti leka á þessum upplýsingum til framsóknarmanna. Ætluðu að klára í gær Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna höfðu vonast til þess að hægt yrði að ljúka umfjöllun um málið í fjárlaganefnd í gær. Nefnd lögfræðinga var fengin til að smíða breytingartillögurnar með lagalegum og efnahagslegum fyrirvörum. Eiríkur Tómasson, veitti nefndinni forystu, en hann hefur lýst efasemdum um ábyrgð Íslendinga gagnvart Icesave. Þá átti Helgi Áss Grétarsson einnig sæti í nefndinni en hann er hluti af Indefence hópnum og er einnig bróðir Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingflokksformanns Vinstri grænna, sem einnig hefur lýst yfir efasemdum um samninginn. Fulltrúar í fjárlaganefnd kynntu stöðu málsins fyrir þingflokkunum rétt fyrir kvöldmat í gær og kom þá í ljós að þingmönnum stjórnarandstöðuflokkanna fannst fyrirvararnir ekki ganga nægjanlega langt. Fjárlaganefnd hittist svo aftur um klukkan átta í gærkvöld og fundaði þar til klukkan var langt gengin tvö í nótt án þess að niðurstaða fengist. Þingflokksfundir hófust klukkan hálftíu í morgun og hefst fundur hjá fjárlaganefnd klukkan eitt í dag þar sem stjórnarmeirihlutinn stefnir að því að afgreiða málið út úr nefndinni.. Í breytingartillögunum er gert ráð fyrir að ekki verði gerð aðför að eignum íslenska ríkisins sem séu nauðsynlegar til að landið haldi fullveldi sínu. Það sama eigi við um eignir ríkisins erlendis, þar með talið eignir Seðlabankans. Þá sé hvergi haggað við yfirráðum Íslands yfir auðlindum landsins. Í lagalegum fyrirvörum kemur fram að ekki hafi fengist leyst úr því álitaefni hvort aðildarríki EES samningsins beri, við kerfishrun á fjármálamarkaði, ábyrgð gagnvart innistæðueigendum vegna lágmarkstryggingar. Fáist síðar úr því skorið að ríki beri ekki slíka ábyrgð skulu fara fram viðræður að nýju. Guðfríður Lilja samþykk Í efnahagslegum viðmiðum er tekið fram að greiðslubyrði ríkissjóðs skuli ekki vera umfram 3,5% af vergri landsframleiðslu hvers árs. Innan Samfylkingarinnar óttast menn að þessi fyrirvari þýði í raun að samningnum sé hafnað af hálfu Íslands. Þar með séu allar áætlanir stjórnvalda um uppbyggingu efnahagslífsins í uppnámi. Verði þessi fyrirvari hins vegar áfram í frumvarpinu eru taldar miklar líkur á að Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfingin muni greiða atkvæði með frumvarpinu en að Framsóknarflokkurinn muni ekki greiða atkvæði með málinu sama hvaða fyrirvarar verði settir þar inn. Stjórnarflokkarnir telja sig hafa meirihluta fyrir málinu jafnvel þótt fyrirvarinn um tiltekna landsframleiðslu verði mildaður eins og Samfylkingarþingmenn vilja. Þó er talið að Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, muni þá greiða atkvæði gegn frumvarpinu en óvissa ríkir um afstöðu Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra. Heimildir fréttastofu herma að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir muni greiða atkvæði með frumvarpinu.
Mest lesið Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Erlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Hrósaði meirihlutanum og sendi þeim gamla pillu Sjá meira