Þjónusta lögreglunnar mun skerðast Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. ágúst 2009 11:17 Í svokallaðri búsáhaldarbyltingu rigndi yfir lögreglumenn grjóti, saur, þvagi, málningu, matvælum og fleiru. Mynd/ Stefán.
Boðaður niðurskurður í lögreglunni í ár og á næsta ári, nái hann fram að ganga óbreyttur, mun augljóslega koma niður á þjónustustigi lögreglunnar um allt land, segir í ályktun stjórnar Landssambands lögreglumanna . Lögreglan mun þurfa, enn frekar, að forgangsraða verkefnum sínum og ljóst að einhverjum þeim verkefnum, sem lögreglan er að sinna í dag mun ekki verða sinnt á næsta ári. „Landssamband lögreglumanna er mjög vel meðvitað um það ástand sem uppi er í þjóðfélaginu í dag, kannski betur en mörg önnur stéttarfélög, því það voru jú félagsmenn LL sem tóku við reiði fólksins í landinu framan við Alþingi Íslendinga í „búsáhaldabyltingunni" svokölluðu, í upphafi þessa árs. Þar rigndi yfir lögreglumenn grjóti, saur, þvagi, málningu, matvælum ýmis skonar o.fl. miður skemmtilegum „flugskeytum"," segir í ályktun lögreglumanna. Stjórn Landssambands lögreglumanna bendir á að félagsmenn séu í nákvæmlega sömu sporum og aðrir launþegar þessa lands, með sínar fjárhagslegu, sem og aðrar, skuldbindingar. Lögreglumenn velti því nú alvarlega fyrir sér, samanber þær fregnir sem komið hafa af úrsögn félagsmanna LL, úr svokölluðum mannfjöldastjórnunarhópum lögreglu, hvoru megin línunnar þeir muni standa komi til annarrar „búsáhaldabyltingar" í haust eða vetur.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Sjá meira