Hvað verður um Ledley King? 3. mars 2009 14:52 Ledley King getur ekki hrist af sér meiðsladrauginn NordicPhotos/GettyImages
Ledley King, fyrirliði Tottenham, viðurkennir að samningsstaða hans hjá félaginu kunni að vera óráðin í ljósi meiðslasögu hans undanfarin ár. Þessi sterki varnarmaður á 18 mánuði eftir af samningi sem færir honum 50,000 pund í vikulaun og er hann einn launahæsti leikmaður félagsins. Hann hefur hinsvegar verið hálfur maður vegna meiðsla undanfarin tímabil og því verður að teljast ólíklegt að hans bíði jafn góður samningur þegar hann sest næst að borðinu með forráðamönnum félagsins. "Ef ég á að vera hreinskilinn er ég nú bara að einbeita mér að því að klára þessa leiktíð. Mig langar að spila eins marga leiki og ég get og hitt kemur að sjálfu sér," sagði King í samtali við Sun, en eins og flestir vita er stjörnum prýtt lið Tottenham í bullandi fallhættu eftir grátlega leiktíð. King hefur ekki geta æft almennilega með liðinu síðan í janúar vegna þrálátra meiðsla, en hann stóð vaktina með sóma í tvær klukkustundir í úrslitaleiknum í deildabikarnum um síðustu helgi. Þessi frammistaða hans vakti hrifningu knattspyrnustjórans Harry Redknapp. "Ledley er ótrúlegur náungi. Hann spilaði allan úrslitaleikinn en æfði ekkert fyrir hann og má raunar ekki æfa neitt. Það er ekkert annað en ótrúlegt að maður skuli spila svona leik við þessar aðstæður og fá ekki einu sinni krampa," sagði Redknapp. Talið er að til greina komi að næsti samningur hins 28 ára gamla King við Tottenham miðist við það hve marga leiki hann nær að spila með liðinu, en hann spilaði aðeins tíu leiki með Spurs á síðustu leiktíð og nítján það sem af er þessari leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Fleiri fréttir Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira