Þráinn segir fyrr frjósa í helvíti en hann gangi í Samfylkinguna Helga Arnardóttir skrifar 9. ágúst 2009 12:22 Þráinn Bertelsson
Þráinn Bertelsson þingmaður Borgarahreyfingarinnar segir að fyrr frjósi í Víti heldur en að hann yfirgefi flokkinn og gangi til liðs við Samfylkinguna. Hann segist vona að ósætti innan flokksins leysist svo hann geti starfað áfram. Ósætti hefur verið innnan Borgarahreyfingarinnar frá því atkvæðagreiðsla fór fram á þingi um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þráinn Bertelsson þingmaður Borgarahreyfingarinnar var sá eini af fjórum flokksmönnum sem greiddi atkvæði með aðildarviðræðum og sakaði hina þrjá sem greiddu atkvæði gegn viðræðum um svik á kosningaloforðum flokksins. Þráinn segist vona að ósætti innan flokksins leysist sem fyrst svo flokkurinn geti starfað áfram sem ein heild. „Ég vona að stjórn borgarahreyfingarinnar og þessir þremenningar sem eru með mér í þinghópnum finni lausn á sínum ágreiningsefnum og ég vil bara halda mig til hlés í þeim deilum því þær snúast á engan hátt um mig," segir Þráinn í samtali við Fréttastofu. Aðspurður hvort hann hafi hugleitt að ganga úr flokknum og til liðs við Samfylkingu hlær hann dátt og svarar: „Ætli það frjósi ekki fyrr í víti heldur en að ég skipti um flokk. Ég skil ekki hvernig nokkur lifandi maður með óbrenglaða dómgreind og góðan vilja getur dregið þá ályktun um að ég sé á leiðinni í einhvern annan stjórnmálaflokk. Ég hef starfað samkvæmt stefnu flokksins og hef hugsað mér að gera það áfram."
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Fleiri fréttir Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Sjá meira