Framþróun eða stöðnun? 11. desember 2009 06:00 Hinn 14. nóv. sl. birtist grein eftir mig í Fréttablaðinu þar sem ég færði rök fyrir því að ekki borgaði sig að slá stjórnlagaþingi á frest líkt og forsætisráðherra hefur nú talað fyrir. Einnig gagnrýndi ég þá aðferð sem tilgreind er í frumvarpi til laga um ráðgefandi stjórnlagaþing. Þó að ýmsir ráðamenn reyni að tala á bjartsýnum nótum um ástand og horfur í málum þjóðarinnar, hringja margar viðvörunarbjöllur sem fá fólk til að efast um að allt sé með felldu. Alþingi situr fast í umræðu um Icesave og önnur mikilvæg mál hrannast upp án þess að á þeim sé tekið. Lögspekingar tala í mismunandi áttir um ákvæði stjórnarskrárinnar, hvort fyrirliggjandi samningar við Breta og Hollendinga brjóti í bága við ákvæði hennar eða ekki. Löng hefð er fyrir því að túlka ákvæði hennar frjálslega og jafnvel á allt annan veg en orðanna hljóðan segir til um. Mörg vestræn ríki hafa sérstakan stjórnarskrárdómstól til að kveða úr um svo mikilvæg álitamál en hér á landi hefur verið látið nægja að spyrja háskólaprófessora álits sem oftar en ekki komast að ólíkum niðurstöðum. Fáir mótmæla því að íslensk þjóð stendur á miklum tímamótum. Fyrir liggur að skuldir þjóðarbúsins séu yfir 300% af VLF sem óháðir hagfræðingar hafa sagt vera ávísun á greiðsluþrot. Misskipting auðs hefur sjaldan verið meiri en nú þar sem að afrakstur auðlinda landsins rennur að mestu óskiptur í vasa útvaldra. Um helmingur heimila landsins skuldar hins vegar húsnæðislán sem hafa hækkað langt umfram nokkur eðlileg viðmið og höfuðstólar margra lána hreinlega stökkbreyst sökum gengishruns krónunnar. Landflótti er ekki bara hræðsluáróður heldur staðreynd sem tölur frá Hagstofunni staðfesta. Blessuð vísitalan fer hækkandi með hverjum mánuði sem líður. Stjórnarskráin okkar er jafngömul lýðveldinu en hlutar hennar reyndar mun eldri, enda heimanmundur frá Dönum. Þó svo að sumir (t.d. forseti Íslands) vilji meina að hún hafi ágætlega staðist tímans tönn þá yrði hún seint talin nútímaleg, hvað þá framsækin. Réttindi og skyldur forsetans eru tíundaðar í 30 greinum af 81 en ekki er einu orði minnst á fjölmargt sem skiptir okkur svo miklu máli, t.d. lífsgæði, auðlindir, mengun, fjölmiðla, menningu, sjálfbærni, loftgæði, drykkjarvatn, náttúru og umhverfi. Lítið bólar heldur á mörgum þeim gildum sem nýafstaðinn Þjóðfundur helst dró fram s.s. heiðarleika, virðingu, réttlæti, kærleika og jöfnuð. Fyrirmyndir að nútímalegri stjórnarskrá má finna víðar en á Vesturlöndum. Varla myndi mörgum Íslendingum detta konungsríkið Bútan í hug þegar leitað er eftir góðu fordæmi. Þetta einangraða land í Himalayafjöllum tók í notkun nýja stjórnarskrá árið 2008 sem er allar athygli verð og sýnir í samanburði hvað sú íslenska er takmörkuð og úr sér gengin. Þar eru t.d. settar miklar skyldur á ríkið að standa vörð um náttúru landsins og vistkerfi, að koma í veg fyrir mengun og tryggja öllum öruggt og heilsusamlegt umhverfi. Einnig er þar að finna óvenjulegri hluti eins og tilvísun til „Vergrar Þjóðarhamingju" (e. Gross National Happiness) sem er mæling á félagslegum, umhverfislegum og menningarlegum lífsgæðum. Ríkinu ber að móta sér stefnu og markmið með hamingju fólks að leiðarljósi. Þessi sérstaka nálgun hefur reyndar vakið athygli málsmetandi manna á Vesturlöndum eins og nóbelsverðlaunahafans Joseph Stiglitz og Sarkozy Frakklandsforseta svo að ekki er ólíklegt að einhver „þróuð" ríki taki sér þetta til fyrirmyndar. Konungur Bútan lagði mikla áherslu á að vinna nýrri stjórnarskrá fylgi meðal þjóðarinnar og ferðaðist um öll héruð landsins til að ræða innihald hennar milliliðalaust við fólk. Þannig tók stór hluti þjóðarinnar beinan þátt í mótun hennar og fyrst það var hægt í afskekktu konungsríki í Himalayafjöllum hlýtur það að vera hægt á Íslandi líka. „Ef við horfum upp á Bútan innleiða svo framsækna nýja stjórnarskrá fyrir 21. öldina án þess að gera nokkuð sjálf mun það verða okkur til ævarandi skammar" sagði spænska konan mín sem benti mér á þetta sérstaka frumkvæði þjóðhöfðingjans í Bútan, sjá nánar: http://www.constitution.bt. Þegar þjóðir hætta að setja sér háleit takmörk er næsta víst að hnignun er á næsta leiti. Viljum við áfram vera eftirbátar annarra þjóða? Ætlum við að fórna meiri tíma í að þrasa um skatta og skuldir án þess að huga að grunngildum þjóðfélagsins, sáttmálanum sem við gerum hvert við annað? Ætlum við að leyfa stjórnmálaflokkunum og hagsmunaaðilum innan þeirra að ráðskast með öll okkar mikilvægustu mál? Ætlum við enn um sinn að horfa upp á alþingismenn tala sig hása langt fram á nótt í tilraun til að sporna við framkvæmdavaldinu? Treystum við Alþingi til að rannsaka sig sjálft? Ætlum við að sætta okkur við að dómarar séu skipaðir á pólitískum forsendum? Hvers vegna í ósköpunum eigum við að líða það að auðlindum landsins sé svo illilega misskipt? Hér á enginn að þurfa að líða skort. Höfundur er kvikmyndagerðarmaður og situr í stjórn Borgarahreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Halldór 12.04.2026 Halldór 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Sjá meira
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun