Segir Ólínu hafa hlegið að eineltisræðu Birgittu 24. júlí 2009 16:13 Ólína Þorvarðardóttir.
Þingmaður Borgarahreyfingarinnar, Þór Saari, gagnrýnir þingkonu Samfylkingarinnar, Ólínu Þorvarðardóttur sérstaklega í pistli sem hann skrifaði á bloggið sitt í dag. Þar sakar hann þingkonuna um að hafa hlegið að Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Borgarahreyfingarinnar, þegar hún stakk upp á því að Alþingi þyrfti hugsanlega á eineltisforvarnaráætluninni Olewus að halda. Tilefnið var ræða Birgittu sem hún flutti í gær þar sem hún sagði Vinstri græna og Samfylkinguna hafa lagt eigin flokksmenn í einelti og því vill Birgitta að þingmenn fái ekki að víkja úr þingsal þegar atkvæðagreiðslur eigi sér stað. Þór skrifar: „Annað ljótt mál skaut aftur upp kollinum þegar Birgitta minntist á eineltið sem margir þingmenn VG urðu fyrir í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar um ESB í síðustu viku. Þá voru einstaka þingmenn sem vitað var að ætluðu að segja nei eða sitja hjá teknir í "viðtal" hjá Jóhönnu sem sat í hliðarsal og sendi hún sendi Björgvin G. ítrekað inn í þingsal eftir villuráfandi VG liðum. Þegar Birgitta var langt komin í athugasemd sinni og þingmönnum ljóst hvað hún var að tala um upphófust mikil frammíköll frá þingkonum Samfylkingar og þá sérstaklega Ólínu Þorvarðardóttur en hún og fleiri höfðu uppi háðsglósur og hlátur um athugasemd Birgittu. Þetta er hins vegar grafalvarlegt mál og alls ekki sæmandi þjóðþingi landsins og það er sennilega óþægilegt fyrir stjórnarmeirihlutann að sjálft Alþingi þurfi hugsanlega á Olewus áætlun að halda." Bloggið má lesa í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Vill að reglugerð um einelti verði virt á Alþingi Samkvæmt reglugerð um meðferð eineltismála sem samþykkt hefur verið af Alþingi þá þarf atvinnurekandi bregðast við eins fljótt og kostur er komi fram ábending eða kvörtun um einelti á vinnustað en þingkona Borgarahreyfingarinnar tilkynnti í púlti í gær að hún hefði orðið vitni af slíku á Alþingi. 24. júlí 2009 15:59 Segir einelti viðgangast á Alþingi Á Alþingi viðgengst hegðun sem gæti ekki túlkast öðruvísi en sem einelti, sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í umræðum um fundarstjórn forseta við upphaf þingfundar í dag. Var Birgitta að vísa til þess að málum væri þröngvað í gegnum þingnefndir án þess að einstakir þingmenn ættu sér viðreisnar von. 23. júlí 2009 11:13 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Sjá meira
Vill að reglugerð um einelti verði virt á Alþingi Samkvæmt reglugerð um meðferð eineltismála sem samþykkt hefur verið af Alþingi þá þarf atvinnurekandi bregðast við eins fljótt og kostur er komi fram ábending eða kvörtun um einelti á vinnustað en þingkona Borgarahreyfingarinnar tilkynnti í púlti í gær að hún hefði orðið vitni af slíku á Alþingi. 24. júlí 2009 15:59
Segir einelti viðgangast á Alþingi Á Alþingi viðgengst hegðun sem gæti ekki túlkast öðruvísi en sem einelti, sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í umræðum um fundarstjórn forseta við upphaf þingfundar í dag. Var Birgitta að vísa til þess að málum væri þröngvað í gegnum þingnefndir án þess að einstakir þingmenn ættu sér viðreisnar von. 23. júlí 2009 11:13