Goldfingermálið kært til Mannréttindadómstólsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. ágúst 2009 14:21 Ásgeir Davíðsson vann málið fyrir Hæstarétti. Mynd/ Vilhelm.
Mál blaðamannsins Bjarkar Eiðsdóttur hefur, með stuðningi Blaðamannafélags Íslands og Birtings útgáfufélags ehf. verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Í fréttatilkynningu frá Blaðamannafélagi Íslands kemur fram að kærð sé niðurstaða Hæstaréttar í máli Ásgeirs Þórs Davíðssonar á veitingahúsinu Goldfinger gegn blaðamanni og ritstjóra Vikunnar. Í málinu var blaðamanni og ritstjóra Vikunnar stefnt fyrir ummæli sem höfð voru eftir fyrrum starfsstúlku á veitingahúsinu Goldfinger í viðtali, meðal annars um að vændi tengdist starfseminni. Starfsstúlkunni fyrrverandi var einnig stefnt en það var síðan dregið til baka eftir að hún staðhæfði fyrir dómi að ekki væri rétt eftir henni haft í viðtalinu. Héraðsdómur sýknaði bæði blaðamann og ritstjóra blaðsins, þar sem þær gætu ekki talist höfundar ummælanna. Hæstiréttur sneri niðurstöðunni við og taldi blaðamanninn höfund greinarinnar og samkvæmt prentlögum væri hann því ábyrgur fyrir öllu sem kæmi þar fram. Í kærunni sem send var Mannréttindadómstólnum í dag er kvartað yfir því að niðurstaða Hæstaréttar í málinu brjóti gegn 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem Ísland hefur lögleitt. Segir Blaðamannafélag Íslands að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi margsinnis ítrekað í dómum sínum, að það feli í sér alvarlegt brot á tjáningarfrelsi og gangi gegn frelsi fjölmiðla að gera blaðamann ábyrgan fyrir orðum viðmælanda síns.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira