Fundu sokkið herskip í Faxaflóanum Valur Grettisson skrifar 19. ágúst 2009 15:09 USCGC Alexander Hamilton. Mynd/lhg.is.
Landhelgisgæslan hefur fundið bandaríska gæsluskipið USCGC Alexander Hamilton á botni hafsins í Faxaflóa en það var olíublettur sem kom gæslumönnunum á sporið. Skipið hefur legið á botninum síðan árið 1942 þegar það varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132. Það var í fyrsta eftirlitsflugi TF-Sifjar þann 7. júlí síðastliðinn sem sást olíuflekkur á Faxaflóa með mengunar-eftirlitsbúnaði flugvélarinnar og virtist olían seytla upp undan yfirborði sjávar. Grunur beindist fljótlega að því að um skipsflak á hafsbotni væri að ræða. Olíuflekkurinn var ekki greinanlegur með berum augum. Engin skip önnur en seglskúta undir fullum seglum voru í nágrenninu. Til að kanna málið nánar var farið í flakaskrá Sjómælingasviðs Landhelgisgæslunnar en ekkert flak er skráð á þeim slóðum þar sem olían seytlaði upp. Hinsvegar kom tundurdufl í troll togskipsins Fróða ÁR í nálægð við þennan stað árið 2002. Þar sem duflið hafði ekki verið virkjað var talið hugsanlegt að duflið væri úr skipi sem hafði verið að flytja það. Það var svo fyrir viku síðan sem sjómælingabáturinn Baldur átti leið yfir Faxaflóann og var rennt með fjölgeislamæli bátsins yfir upptök olíuflekans. Kom þá í ljós þúst á hafsbotninum á um 90 metra dýpi sem er 8 metra há, 97 metra löng og 13 metra breið. Þegar tími gefst til mun verða unnið betur úr mælingunni og mun þá að öllum líkindum verða hægt að greina betur útlínur þessarar þústar. Ef grunur Landhelgisgæslunnar um að þarna sé um að ræða skipsflak á hafsbotninum er á rökum reistur verður næsta skref að fara með neðansjávarmyndavél um svæðið. Við nánari eftirgrennslan hefur komið í ljós að líklegast er um að ræða varðskip bandarísku strandgæslunnar USCGC Alexander Hamilton sem var 327 fet að lengd (99,5 metrar) og sökk á svæðinu árið 1942. Skipið var að fylgja skipalest yfir hafið sem varð fyrir árás þýska kafbátsins U-132. Atvikslýsingu frá atburðinum má finna í grein eftir Admiral Allen sem var ungur officer um borð í Alexander Hamilton árið 1942. Í grein hans segir að um 150 manns hafi verið bjargað um borð í íslenska fiskibáta, um 50 þeirra voru særðir, þar af sumir með mikil brunasár eftir sprengingar í gufukatli en alls fórust 26 sjóliðar í árásinni eða létust af sárum sínum í framhaldi af henni. Herskip hafi komið frá Hvalfirði til aðstoðar og hafi að lokum sökkt kafbátnum með djúpsprengjum eftir að hafa hrakið hann á grunnsævi nálægt landi með djúpsprengjuárásum. Einhverstaðar í Faxaflóanum eða undan Reykjanesi ættu því að vera einhverjar leifar af U-132 samkvæmt þessu en ekki ber því þó saman við aðrar skrár um örlög kafbátsins. Admiral Allen skrifaði greinina árið 1946 en hún hefur oft verið birt síðan. Var Alexander Hamilton fyrsta bandaríska herskipið/varðskipið sem sökkt var í Norður-Atlantshafi eftir að Bandaríkin lýstu yfir stríði við öxulveldin eftir árásina á Perluhöfn í desember 1941.Nánar er hægt að lesa um málið á vef Landhelgisgæslunnar.
Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira