Mark Romario kjörið hið besta í sögu Barcelona (myndbönd) Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2008 10:56 Romario í leik gegn Gary Pallister og félögum í Manchester United árið 1994. Nordic Photos / Getty Images
Á dögunum stóð spænska dagblaðið El Mundo Deportivo fyrir kosningu á heimasíðu sinni um hvert væri besta mark Barcelona frá upphafi. Brasilíumaðurinn Romario hafði vinninginn. Romario tilkynnti í vikunni að hann væri endanlega hættur knattspyrnuiðkun en hann skoraði meira en 1000 mörk á ferlinum, að eigin sögn. Hann lék með Barcelona á árunum 1993 til 1995 þar sem hann skoraði til að mynda þrennu í ótrúlegum 5-0 sigri Börsunga á Real Madrid, tímabilið 1993-94. Markið fékk nítján prósent atkvæða og hafði betur en markið sem Maradona skoraði, einnig gegn Real Madrid, leiktíðina 1982-83. Í þriðja sæti var markið sem Lionel Messi skoraði gegn Getafe í spænsku bikarkeppninni en það þótti minna mikið á frægasta mark allra tíma - er Maradona skoraði eftir að hafa spólað sig í gegnum ensku vörnina á HM í Mexíkó árið 1986. Hér má sjá myndbönd af mörkunum þremur: 1. Romario (fyrsta markið) 2. Maradona 3. Messi
Spænski boltinn Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ FH - Valur | Vængbrotnir í Krikanum Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 KA - ÍA | Tvö sem hafa valdið vonbrigðum Fram - Þór Ak. | Botnliðið í Úlfarsárdal Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Sjá meira