Enski boltinn

Harmar að líkja dómara við Mikka mús

NordicPhotos/GettyImages

Joe Kinnear, stjóri Newcastle, hefur beðið dómarann Mark Atkinson afsökunar á því að hafa líkt honum við Mikka mús eftir 2-1 tap liðsins gegn Newcastle um daginn.

Knattspyrnusambandið kallaði stjórann inn á teppi í kjölfar ummæla hans og gæti hann átt yfir höfði sér refsingu vegna þessa.

"Mér þykir leitt ef ég hef móðgað einhvern með ummælum mínum. Ég ætla að hringja í Atkinson dómara og biðja hann afsökunar. Mér var mjög heitt í hamsi eftir tapið," sagði Kinnear.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×