Eiður: Messi er besti leikmaður heims Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2008 11:18 Eiður Smári og Lionel Messi í leik með Barcelona. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali við spænska miðla að hann telji að Lionel Messi, félagi sinn hjá Barcelona, sé betri en Cristiano Ronaldo. Margir reikna með því að Ronaldo verði kosinn bæði knattspyrnumaður ársins í Evrópu sem og besti leikmaður heims hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Það kemur Eiði ekki á óvart. „Ég tel að það sé eðlilegt að leikmaður sem er hjá sigurliði hljóti slíkar viðurkenningar. Við unnum enga titla á síðustu leiktíð. En þegar að Barcelona og Manchester United mættust í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð mátti öllum vera ljóst að Messi er betri leikmaður," sagði hann. Eiður meiddist í landsleik Íslands og Makedóníu í upphafi síðasta mánaðar og hefur síðan þá ekkert spilað með Börsungum. Fyrir landsleikinn var hann búinn að standa sig vel með Börsungum og skoraði til að mynda eitt mark í 6-1 stórsigri Barcelona á Atletico Madrid. En Eiður segist þess fullviss að hann fái tækifærið á nýjan leik af sömu ástæðum að hann ákvað að vera um kyrrt í herbúðum félagsins í sumar. „Ein af ástæðum þess að ég ákvað að vera áfram hjá Barcelona var að Pep Guardiola sagði að ef ég yrði áfram yrði ég hluti af hans áætlunum fyrir liðið." „Ég sagði honum að ég hafði ekki áhuga á því að vera hjá Barcelona bara til þess eins. Ég vildi fá mitt hlutverk með liðinu." „Ég hef mikinn metnað, sérstaklega þar sem liðið hefur ekki unnið neina titla síðan ég kom hingað. En eftir einn fund með honum var ég ekki lengur í neinum vafa um þetta." Hann segir að stemningin í leikmannahópi Barcelona sé allt önnur og betri en á síðustu leiktíð. Það sé nýja stjóranum að þakka. „Við erum að æfa meira og það ríkir meiri agi á æfingum. Okkur er skylt að mæta fyrr en áður og borða morgunmat saman og stundum hádegismat eftir æfingar. Það eru nokkur smáatriði sem hafa breyst." „Við virðumst ná betur saman sem liðsheild og það ríkir meiri virðing á milli leikmanna. Það er líka mjög ánægjulegt að sjá þegar vinnan skilar sér í betri árangri á vellinum. Ég held að við getum náð góðum árangri á þessu tímabili."
Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira