Tottenham fór illa með Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. nóvember 2008 21:43 Frazier Campbell fór á kostum með Tottenham í kvöld.
Tottenham vann í kvöld 4-2 sigur á Liverpool í ensku deildarbikarkeppninni í knattspyrnu. Alls fóru þrír leikir fram í keppninni í kvöld. Blackburn vann 2-1 sigur á Sunderland á útivelli en framlengja þurfti leik Chelsea og Burnley þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Tottenham komst í 3-0 á sjö mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks. Lið Liverpool var skipað mörgum leikmönnum sem hafa fá tækifæri fengið í vetur og virtist liðið, sérstaklega í vörn, ná illa saman. Roman Pavlyuchenko kom Tottenham yfir með skoti úr miðjum vítateignum eftir fyrirgjöf frá vinstri. Þá var komið að Frazier Campbell sem skoraði tvívegis, það fyrra eftir slakt úthlaup Diego Cavalieri, markvörð Liverpool, og það síðara með skalla. Damien Plessis minnkaði muninn fyrir Liverpool í upphafi síðari hálfleiks en Pavlyuchenko jók muninn á nýjan leik nánast í næstu sókn. Sami Hyypia skoraði svo annað mark Liverpool en þar við sat. Bæði mörk Liverpool komu eftir nokkuð skrautlega tilburði Heurelho Gomes, markvörð Tottenham, sem þurfti síðar að fara af velli eftir samstuð við Philpp Degen. Gomes virtist vera illa meiddur í andliti. Roque Santa Cruz kom Blackburn í 2-0 gegn Sunderland í kvöld áður en Kenwyne Jones minnkaði muninn fyrir heimamenn á 71. mínútu.
Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira