Innlent

Formaður VG andvígur aðstoð frá IMF

Steingrímur J. Sigfússon er andvígur því að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Steingrímur J. Sigfússon er andvígur því að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, er andvígur því að óska eftir stuðningi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann segir það vera mat sitt að önnur úrræði hafi ekki verið reynd til þrautar og að kringumstæður, skilmálar og það ferli sem framundan er, ef leitað verði til sjóðsins, sé allt mjög varhugavert. Þetta kemur fram í bókun sem Steingrímur lagði fram á fundi utanríkisnefndar Alþingis í dag.

Steingrímur gagnrýnir að ekki skuli hafa verið kannaðir til þrautar aðrir kostir en sá einn að snúa sér til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Það hefði átt að leita til Norðmanna sem sýnt hafi okkur mikinn velvilja, og eftir atvikum einnig annarra Norðurlanda, eða þá biðja Norðmenn að taka forystu í að samræma slíkar aðgerðir. Að mati Steingríms hefði miklu skipt að komast hjá því að lenda formlega undir skilmálum Alþjóðagjaleyrissjóðsins en sættast fremur á ráðgjöf og stuðning sjóðsins, til dæmis við norræna aðgerðaáætlun til aðstoðar Íslandi.

Steingrímur lýsir miklum vonbrigðum með hvernig mál hafi þróast hvað varði vinnu ríkisstjórnarinnar síðastliðnar þrjár vikur rúmar að lausn efnahagsvandans á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×