Boltavaktin á öllum leikjum dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2008 15:26
Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins mun fylgjast náið með gangi mála í þeim fimm leikjum sem eru á dagskrá Landsbankadeildar karla í dag. Hægt er að fylgjast með leikjum dagsins samtímis á Miðstöð Boltavaktarinnar, visir.is/boltavakt. Leikirnir hefjast klukkan 16.00 en hægt er að lesa nánar um gang þeirra með því að smella á viðkomandi leiki. Deildin hefst nú að nýju eftir landsleikjafríið en í dag er það nítjánda umferð sem hefst með fimm leikjum. Sá sjötti, leikur Þróttar og ÍA, fer fram á morgun. Spennan er mikil bæði á botni og toppi en Keflvíkingar geta tekið annað skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum með sigri á Fjölni í Grafarvoginum í dag. Síðast þegar Keflvíkingar töpuðu leik í deildinni var fyrir Fjölni í Keflavík. Þeir hafa því leikið ellefu leiki í röð án taps. Liðið er nú á toppi deildarinnar með fimm stiga forystu á FH sem á þó leik til góða. FH mætir Íslandsmeisturum Vals á heimavelli en síðarnefnda liðið er í þriðja sæti og getur jafnað FH að stigum með sigri í dag. Það er því mikið undir í þeim leik, ekki bara fyrir FH og Val, heldur Keflavík einnig. Framarar eru ekki nema einu stigi á eftir Val í fjórða sæti deildarinnar og mæta Blikum í Kópavoginum. Blikar eru í sjötta sæti deildarinnar með 27 stig og því um annan slag tveggja öflugra liða að ræða. KR er í fimmta sætinu og tekur á móti öflugu liði HK sem hefur ekki tapað í fjórum leikjum í röð og unnið síðustu þrjá. Í þessum fjórum leikjum hefur liðið fengið tíu stig - fimm meira en í öllum fjórtán leikjunum á undan. HK er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og er einu stigi á eftir Fylki sem er í þriðja neðsta sæti. Fylkir mætir í heimsókn til Grindavíkur sem er í sjöunda sæti deildarinnar og á ekki raunhæfan möguleika á því að falla eða ná í Evrópusæti.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Enski boltinn Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Arnar og Bjarki unnu golfmót Golf Kom inn á fyrir Dag, skoraði og kýldi mótherja Fótbolti Leik lokið: KA - Fram 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: FH - ÍBV | Sæti í efri hlutanum undir Leik lokið: KA - Fram 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Sjáðu mörkin: Borðtennis í Garðabæ og tveggja mánaða bið tók enda á Akureyri „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ „Spark í rassinn til að gíra okkur upp í þetta“ „Stór og merkilegur viðburður fyrir okkur“ „Vilji, kraftur, ákveðni og hugarfar hjá mínum stelpum“ Arna Eiríksdóttir: „Við töpuðum tveimur stigum í dag“ Uppgjör og vitöl: Stjarnan-FH 2-2 | FH að missa Blikana frá sér Uppgjör: Þór/KA-FHL 4-0 | Norðankonur í stuði á móti botnliðinu Fá góðar fréttir fyrir stærsta leik í sögu félagsins „Af hverju er Tómas Orri ekki að að spila í Breiðabliki?“ Ólafur Kristjáns: Þá vitum við að hún er ekkert að grínast Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-5 | Markasúpa er Víkingar komust aftur á sigurbraut Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Valur 0-2 | Valskonur á siglingu Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Úlfur talinn sá allra besti vestanhafs „Guð hvað ég hafði rangt fyrir mér og ég er ánægður með það“ Bræðraslagur í bikarúrslitaleiknum í ár: „Er alltaf að reyna að ögra mér“ KSÍ opið fyrir sjálfkrafa bönnum en reglubreyting ekki í vinnslu Valsmenn bara mannlegir? „Ég ætla ekki í eina einustu tæklingu hérna“ Tvö mörk með fyrstu tveimur snertingunum Stúkan birti samskipti dómara: „Ég þarf að taka stórar ákvarðanir“ Sjá meira