Enski boltinn

Ishmael Miller frá út tímabilið

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leikmenn West Brom fagna marki frá Miller.
Leikmenn West Brom fagna marki frá Miller.

Botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, West Bromwich Albion, varð fyrir miklu áfalli í dag þegar í ljós kom að sóknarmaðurinn Ismael Miller spilar ekki meira á tímabilinu.

Miller sleit krossbönd í leik gegn Portsmouth um síðustu helgi. West Brom hefur aðeins skorað 12 deildarmörk á tímabilinu, minnst af öllum liðum úrvalsdeildarinnar.

Tony Mowbray, knattspyrnustjóri West Brom, segir að skoðaðir verða möguleikar á að kaupa sóknarmann í hans stað í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×