Innlent

Bankastjóri Kaupþings hefur óskað eftir launalækkun

Laun bankastjóra nýja Kaupþings verða lækkuð til samræmis við laun bankastýru nýja Glitnis. Bankastjórinn óskaði sjálfur eftir þessari breytingu.

Finnur Sveinbjörnsson, var ráðinn bankastjóri Kaupþings, í síðustu viku og var þá jafnframt tilkynnt að mánaðalaun hans myndu nema einn milljón og níu hundruð og fimmtíu þúsund krónum.

Viðskiptaráðherra sem og félagsmálaráðherra gagnrýndu þennan samning og töldu að laun bankastjórans væru of há og alls ekki í samræmi við launastefnu hins opinbera.

Til samanburðar má nefna að Birna Einarsdóttir, nýráðinn bankastjóra Nýja Glitnis fær sautjánhundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði, eða tvö hundruð þúsund krónur minna í laun en Finnur - þrátt fyrir að stýra stærri banka.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Finnur nú óskað eftir því við stjórn Kaupþings að laun hans verði lækkuð um tvö hundruð þúsund krónur til jafns við laun bankastjóra Glitnis. Fastlega er búist við því að bankastjórnin samþykki þá ósk.

Í nýju skipuriti sem Kaupþing kynnti í gær kemur ennfremur fram að allir sviðsstjórar hins nýja banka sátu áður í stjórnunarstöðum í gamla bankanum.

Aðeins ein kona gegnir starfi sviðsstjóra hjá bankanum en í heild eru þeir níu talsins. Af tuttugu og níu sviðsstjórum hjá hinum nýstofnuðu ríkisbönkum eru aðeins fimm konur. Þetta er nokkuð á skjön við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að stefnt skuli að því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnunarstöðum á vegum ríkisins.

Í Markaðnum á Stöð 2 í morgun kom fram að upphaflega stóð til að ráða Kristínu Pétursdóttur, forstjóra Auðar Capital, sem bankastjóra Kaupþings en Kristín hafnaði hins vegar boðinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×