Barton veit að hann er á síðasta séns Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. október 2008 10:14 Joey Barton í leik með Newcastle. Nordic Photos / Getty Images
Joey Barton er gjaldgengur í lið Newcastle sem mætir Sunderland um helgina en hann spilaði með varaliði félagsins nú í vikunni. Barton sat í fangelsi í 74 daga fyrr á þessu ári vegna líkamsárásar og þá var hann dæmdur í sex leikja bann fyrir að ráðast á fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City, Ousmani Dabo, í fyrra. Hann segist gera sér fulla grein fyrir því að hann eigi ekki mörg tækifæri eftir til að koma sér á rétta braut í knattspyrnunni. „Ég hef vonandi lært af mínum mistökum. Ég er á mínum síðasta séns og er þakklátur fyrir að hafa fengið eitt tækifærið enn," sagði Barton sem viðurkenndi að vandamál hans tengjast áfengisdrykkju. Hann hefur hins vegar ekki drukkið áfengi síðustu tíu mánuðina. „Ég er að reyna að koma lífi mínu og fótboltaferli á rétt spor. Síðustu átján mánuðir hafa verið algjört helvíti. Ég byrjaði aftur að spila en stuðningsmennirnir bauluðu á mig og ég var ekki að spila vel." „En ég náði að halda áfram og fór að standa mig betur. Aðalmálið fyrir mig er að halda mér allsgáðum og mér líst vel á framtíðina. Ég myndi vissulega vilja breyta ýmsu í minni fortíð en það er einfaldlega ekki hægt."
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira