Enski boltinn

Adebayor blæs á kjaftasögurnar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Adebayor á góðri stundu.
Adebayor á góðri stundu.

Emmanuel Adebayor, sóknarmaður Arsenal, neitar því að vera á leið til ítalska liðsins AC Milan í sumar. Hann segist vera hæstánægður hjá Arsenal og elska félagið og stuðningsmenn þess.

„Við höfum frábæran hóp með frábæran liðsanda. Við höfum átt gott tímabil en á næsta ári verðum við enn betri og tökum bikar," sagði Adebayor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×