Enski boltinn

Campo og Stelios farnir frá Bolton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ivan Campo er hér vinstra megin á myndinni í leik með Bolton gegn Chelsea.
Ivan Campo er hér vinstra megin á myndinni í leik með Bolton gegn Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Bolton hefur losað þá Ivan Campo, Stelios Giannakopolous og Andranik Teymourian undað samningum sínum við félagið.

Gary Megson, stjóri liðsins, vonast þó til þess að Ricardo Gardner og Jussi Jaaskelainen semji aftur við félagið en samningar þeirra renna út nú í sumar.

„Jussi og Ricardo hafa veirð frábærir starfsmenn félagsins og eru vissulega hluti af mínum framtíðaráætlunum fyrir liðið," sagði Megson. „Vonandi getum við gengið frá nýjum samningum eins fljótt og auðið er."

„Ivan, Stelios og Andranik hafa allir staðið sig vel hjá Bolton og vil ég bera þeim þakklæti mitt," bætti hann við. „Það er kominn tími til að þeir færi sig um set og óska ég þeim alls hins besta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×