Howard Webb sendur heim Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júní 2008 23:00 Howard Webb. Nordic Photos / AFP
Enski dómarinn Howard Webb hefur verið sendur heim frá EM í Austurríki og Sviss og fær ekki að dæma meira í keppninni. Webb og aðstoðardómarar hans tveir voru eitt fjögurra dómaratríóa sem fengu ekki verkefni í útsláttarkeppninni. Hin tríóin sem voru send heim komu frá Austurríki, Hollandi og Noregi. Webb dæmdi viðureign Póllands og Austurríkis þar sem síðarnefnda liðinu var dæmd vítaspyrna í blálok leiksins. Ivica Vastic skoraði úr vítinu og gerði þar með nánast út um vonir Pólverja á mótinu. Vítið dæmdi hann eftir að varnarmaður Póllands togaði niður andstæðing sinn í teignum. Dómurinn þótti umdeildur og sagði Leo Beenhakker, landsliðsþjálfari Póllands, að hann væri ekki í samræmi við dómgæslu á mótinu. Forsætisráðherra Póllands sagði að hann hefði viljað drepa Webb eftir leikinn. En fulltrúar Knattspyrnusambands Evrópu sögðu dóminn réttan og Webb stóð sjálfur við hann nokkrum dögum síðar. Hann var hins vegar sá eftir því að hafa leyft marki Pólverja í leiknum að standa því um rangstæðu hefði verið að ræða. Webb dæmdi einnig viðureign Spánverja og Grikkja sem skipti engu máli. Slóvakinn Lubos Michel og Herbert Fandel frá Þýskalandi þykja vera meðal bestu dómara heims um þessar mundir. Michel dæmir viðureign Hollands og Rússland á laugardaginn kemur og Fandel verður dómari leiks Spánar og Ítalíu. Peter Fröjfeldt dæmdi leik Portúgals og Þýskalands í kvöld og þá dæmir Roberto Roosetti leik Króatíu og Tyrklands annað kvöld. Þeir dómarar sem enn koma til greina í undanúrslitunum og sjálfum úrslitunum eru auk hinna fjögurra þeir Massimo Busacca frá Sviss, Frank De Bleeckere frá Belgíu, Kyros Vassaras frá Grikklandi og Manuel Enriue Mejuto González frá Spáni.
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira