Þýskaland í undanúrslit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júní 2008 19:34 Bastian Schweinsteiger fagnar hér marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Þýskaland er komið í undanúrslit á EM 2008 eftir glæsilegan 3-2 sigur á Portúgal í kvöld. Bastian Schweinsteiger átti stórleik en hann skoraði fyrsta mark Þjóðverja og lagði upp hin tvö. Nuno Gomes og Helder Postiga skoruðu mörk Portúgals. Þjóðverjar urðu fyrir áfalli þegar í ljós kom að Torsten Frings yrði ekki með þeim í leiknum í kvöld þar sem hann er með brotið rifbein. En það kom ekki að sök og strax á 22. mínútu komust þeir þýsku yfir. Þetta þýddi að þeir Thomas Hitzlsperger og Simon Rolfes voru báðir varnartengiliðir og Joachim Löw, sem var í banni í kvöld, stillti aðeins upp einum sóknarmanni - Miroslav Klose. Michael Ballack var fremstur á miðjunni, Lukas Podolski á vinstri kantinum og Schweinsteiger á þeim hægri. Það kom hins vegar fátt á óvart í uppstillingu Portúgals með Cristiano Ronaldo fremstan í flokki. Uppstillingin var sú sama og þegar Portúgal vann sigur á Tékkum í annarri umferð riðlakeppninnar. Lukas Podolski og Michael Ballack áttu þá laglegt samspil á vinstri kantinum sem opnaði vörn Portúgals upp á gátt. Podolski átti svo sendingu fyrir markið þar sem Bastian Schweinsteiger kom aðvífandi og stýrði boltanum í netið af stuttu færi. Aðeins fjórum mínútum síðar átti Schweinsteiger fyrirgjöf inn á teig úr aukaspyrnu. Miroslav Klose náði að hrista varnarmenn Portúgals af sér og skoraði með skalla. En Portúgal neitaði að játa sig sigrað og á 42. mínútu minnkaði Nuno Gomes metin. Jens Lehmann varði þá frá Cristiano Ronaldo eftir laglegan undirbúning Deco og Simao en Nuno Gomes náði frákastinu og skoraði. Cristoph Metzelder var nálægt því að verja á marklínu en boltinn fór af honum og í markið. Síðari hálfleikur hófst með látum en á 61. mínútu komst Þýskaland í 3-1 forystu með marki Michael Ballack. Aftur fékk Þýskaland aukaspyrnu eftir að Pepe hafði brotið nokkuð illa á Klose. Schweinsteiger tók aukaspyrnuna og Ballack hafði betur í baráttunni við Paulo Ferreira og skallaði knöttinn í markið. Ballack ýtti þó létt við Ferreira en það sást greinilega í endursýningum í sjónvarpi. Podolski hafði einnig ýtt við varnarmanni Portúgals skömmu áður en hann gaf sendinguna á Schweinsteiger í fyrsta marki þýska landsliðsins. Luiz Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgal, var ekki ánægður með að dómarinn hafi ekki dæmt Ballack brotlegan en hann fékk engu breytt. Allt útlit var fyrir að sigurinn væri tryggður en varamaðurinn Helder Postiga minnkaði muninn fyrir Portúgal á 87. mínútu leiksins með skalla eftir fyrirgjöf Nani. Þýska vörnin svaf þar illa á verðinum en Postiga var einn á auðum sjó. En nær komust Portúgalar ekki og verða því að bíta í það súra epli að falla úr leik á EM eftir að hafa náð sér vel á strik í upphafi mótsins. Í kvöld varð Nuno Gomes fjórði knattspyrnumaðurinn til að skora á þremur mismunandi Evrópumótum. Hinir eru Jürgen Klinsmann, Vladimir Smicer og Thierry Henry.
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira