Klárt hvaða lið mætast í úrslitakeppni NFL-deildarinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2008 15:30 Tony Romo og félagar í Dallas komust ekki áfram í úrslitakeppnina. Nordic Photos / Getty Images
Nú er ljóst hvaða lið komust áfram í úrslitakeppni NFL-deildarinnar en deildakeppninni lauk í gær. Detroit Lions varð fyrsta liðið í sögu deildarinnar til að tapa öllum sextán leikjum sínum á tímabilinu. Philadelphia Eagles tókst að vinna sér sæti í úrslitakeppninni með óvæntum stórsigri á Dallas í gær, 44-6. Hins vegar mistókst New York Jets, liði Brett Favre, að tryggja sig áfram eftir að byrjunin á tímabilinu lofaði góðu. Jets vann átta af fyrstu ellefu leikjum sínum en tapaði fjórum af síðustu fimm leikjum sínum, nú síðast fyrir Tennessee. Favre hefur átt við meiðsli í öxl að stríða og segir að hann muni ekki taka ákvörðun um framtíðina fyrr en hann veit meira um batahorfur sínar. Hann er 39 ára gamall og ætlaði að hætta eftir síðasta tímabil en ákvað að snúa aftur í sumar. New England Patriots komst heldur ekki í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2002 en liðið tapaði fyrir New York Giants í Super Bowl á síðasta tímabili. Patriots vann ellefu leiki af sextán á tímabilinu og varð þar með fyrsta liðið síðan 1985 sem kemst ekki í úrslitakeppninna með það sigurhlutfall. Önnur lið sem áttu enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni fyrir lokaumferðina en komust ekki áfram voru til að mynda Chicago Bears og Tampa Bay Buccaneers sem leika í Þjóðardeildinni. Síðarnefnda liðið tapaði óvænt fyrir Oakland en Chicago fyrir Houston. Í Ameríkudeildinni áttust San Diego og Denver við í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kæmist í úrslitakeppnina og vann San Diego stórsigur í leiknum, 52-21. Baltimore komst einnig áfram með því að vinna Jacksonville, 24-7. Alls komust tólf lið áfram í úrslitakeppnina en fjögur þeirra komust beint áfram í fjórðungsúrslitin. Hin átta þurfa að mætast í umspili um hin fjögur sætin. Liðunum er raðað í styrkleikaröð úr báðum deildum og í fjórðungsúrslitunum mætir liðið sem er í efsta sæti alltaf neðsta liðinu af þeim sem komast áfram úr umspilinu. Ameríkudeildin: 1. Tennessee Titans (sigurvegari suðurriðilsins) 2. Pittsburgh Stellers (sigurvegari norðurriðilsins) 3. Miami Dolphins (sigurvegari austurriðilsins) 4. San Diego Chargers (sigurvegari vesturriðilsins) 5. Indianapolis Colts 6. Baltimore Ravens Þjóðardeildin: 1. New York Giants (sigurvegari austurriðilsins) 2. Carolina Panthers (sigurvegari suðurriðilsins) 3. Minnesota Vikings (sigurvegari norðurriðilsins) 4. Arizona Cardinals (sigurvegari vesturriðilsins) 5. Atlanta Falcons 6. Philadelphia Eagles Leikir fyrstu umferð úrslitakeppninnar: Ameríkudeildin: Miami (3) - Baltimore (6) (4. janúar) San Diego (4) - Indianapolis (5) (3. janúar) Af þeim tveimur liðum sem komast áfram, mætir liðið sem er ofar í styrkleikaröðinni Pittsburgh þann 11. janúar en hitt Tennessee þann 10. janúar. Leikur Miami og Baltimore verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti en hann hefst óvenju snemma, eða klukkan 18.00. Úrslitaleikur Ameríkudeildarinnar deildarinnar verður háður þann 18. janúar. Þjóðardeildin: Arizona (4) - Atlanta (5) Minnesota (3) - Philadelphia (6) Af þeim tveimur liðum sem komast áfram, mætir liðið sem er ofar í styrkleikaröðinni New York Giants þann 11. janúar en hitt Carolina þann 10. janúar. Úrslitaleikur Þjóðardeildarinnar verður háður þann 18. janúar. Úrslitaleikurinn um NFL-meistaratitilinn, Super Bowl, verður háður þann 1. febrúar á Raymond James-leikvanginum í Tampa í Flórída, heimavelli Tampa Bay Buccaneers.
Fótbolti Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Hákon skoraði tvö í vináttuleik Louis Van Gaal hefur sigrast á krabbameini Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Þór fer upp í umspilssæti Arnór Sigurðsson hafði betur í Íslendingaslagnum Rústaði úrslitunum á Wimbledon „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Onana frá næstu vikurnar Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Dagskráin í dag: Meira, meira golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Sjá meira