Scotty: Myndi veðja á Ísland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. september 2008 16:15 Scott Ramsay, leikmaður Grindavíkur. Mynd/Vilhelm
Scott Ramsay, leikmaður Grindavíkur, myndi frekar veðja á íslenskan sigur gegn Skotum á miðvikudaginn en hitt. Hann ætlar að sitja með íslenskum áhorfendum á leiknum. „Ég er auðvitað enn stuðningsmaður Skota en ég hef það á tilfinningunni að Ísland muni vinna þennan leik. Ef ég ætti að setja pening undir leikinn myndi ég frekar veðja á Ísland," sagði Scott sem kom hingað til lands árið 1996 frá Skotlandi. „Skotar voru óheppnir að ná ekki lengra í síðustu undankeppni eftir að þeir unnu Frakka tvisvar. En það er ljóst að ef þeir vinna ekki á miðvikudaginn verða vonir þeirra um að komast á HM mjög litlar. Ég býst við mjög jöfnum leik." Skotland spilaði síðast hér á landi árið 2002 en þá var Scott á meðal áhorfenda. „Ég og (Paul) McShane fórum á leikinn og sátum með skosku áhorfendunum. Ég ætla þó að sitja með Íslendingum núna." Skoska úrvalsdeildarliðið Inverness CT sendi Grindvíkingum fyrirspurn nú í haust vegna Scott. Ekkert varð úr því að hann hefði verið lánaður til félagsins. „Þetta var bara mál á milli félaganna. Það hefði vissulega verið mjög gaman að fara enda mörg ár síðan ég spilaði síðast í Skotlandi. En þetta var ekki mín ákvörðun og er ég mjög sáttur við að vera áfram í Grindavík," sagði Scott. Hann hefur verið einn allra besti leikmaður Landsbankadeildarinnar í sumar og fyrst skoskt úrvalsdeildarlið spurðist fyrir um hann er eðlilegt að velta fyrir sér hvort að George Burley landsliðsþjálfari hafi eitthvað fylgst með kappanum. „Ertu að grínast? Það er ekki séns á því. Þú skalt ekki einu sinni reyna þetta," sagði hann og hló.
Mest lesið Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Takk fyrir okkur en við þurfum fleiri stig“ Handbolti „Íslenska geðveikin sem við tölum oft um, þetta var hún“ Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Svíþjóð: Ótal hetjur í fræknum sigri Handbolti EM í dag: Flensuleikur Vals og stemningslausir Svíar Handbolti Fleiri fréttir Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Sjá meira