Möguleiki á fjórum Evrópusætum í deildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2008 10:16 Úr leik Fram og KR fyrr í sumar.
Fjögur efstu liðin í Landsbankadeild karla fá þátttökurétt í Evrópukeppnunum á næsta ár ef KR verður bikarmeistari karla um aðra helgi og verður í einum af fjórum efstu sætum deildarinnar. KR og Fjölnir mætast í úrslitum bikarkeppninnar en bikarmeistarar karla fá þátttökurétt í UEFA-bikarkeppninni á næsta ári. Íslandsmeistararnir keppa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en tvö næstu lið fara í UEFA-bikarkeppnina. Ef bikarmeistararnir verða einnig í 2. eða 3. sæti deildarinnar færist þátttökuréttur í UEFA-bikarkeppninni á liðið sem verður í fjórða sæti. KR á engan möguleika á öðru sæti deildarinnar. Ef KR verður hins vegar bikarmeistari og nær einnig þriðja sæti deildarinnar mun liðið í fjórða sæti einnig fá þátttökurétt í UEFA-bikarkeppninni. Ef Fjölnir verður hins vegar bikarmeistari þurfa Reykjavíkurveldin Fram, KR og Valur að bítast um eitt laust sæti í Evrópukeppninni í lokaumferðinni um næstu helgi. Keflavík og FH eru nú þegar búin að tryggja sér þátttökurétt í Evrópukeppnunum á næsta ári þar sem ekkert lið getur náð þeim að stigum í efstu tveimur sætum deildarinnar. Eina spurningin er hvort liðið fer í Meistaradeildina.Baráttan um Evrópusætin 3. Fram 37 stig (+9 í markatölu) 4. KR 36 (+14) 5. Valur 35 (+7)Leikir liðanna í lokaumferðinni: Keflavík - Fram Valur - KR
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Í beinni: Arsenal - Manchester United | Stórveldi slást um stigin þrjú Enski boltinn Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Sport Fleiri fréttir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Sjá meira