Enski boltinn

Rooney klæðist Borat-sundfötum

Sundfötin sem Rooney verður látinn klæðast verða væntanlega eitthvað í ætt við þessi
Sundfötin sem Rooney verður látinn klæðast verða væntanlega eitthvað í ætt við þessi

Félagar Wayne Rooney hjá Manchester United eru nú í óðaönn að undirbúa steggjapartíið fyrir framherjann. Rooney ætlar að kvænast unnustu sinni Coleen McLoughlin í sumar, en fær að kenna á því frá félögum sínum áður en hann gengur í það heilaga.

Þannig hefur The Sun heimildir fyrir því að félagar framherjans unga ætli sér að láta hann klæðast ögrandi baðfötum að hætti kvikmyndapersónunnar Borat í steggjapartíinu.

Rooney er nú á Tenerife þar sem hann er að sletta úr klaufunum áður en hann gengur að eiga Coleen sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×