Enski boltinn

Brasilísk vefsíða segir Ronaldo vilja til Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar

Cristiano Ronaldo vill fara frá Manchester United og ganga til liðs við Real Madrid. Þetta segir virt brasilísk vefsíða, Terra. Ronaldo er nú í Sviss við æfingar með portúgalska landsliðinu.

„Ég vil ganga til liðs við Real Madrid, en aðeins ef þeir eru tilbúnir að borga mér og Manchester United það sem þeir hafa talað um," sagði Ronaldo við Terra.

„Eftir þetta mun ég ekki ræða þessi mál aftur fyrr en eftir Evrópumótið. Það mun ekkert duga að spyrja mig því ég mun ekki svara," sagði Ronaldo. Nú þegar leikmaðurinn virðist segja að leið sín liggi til Spánar má reikna með að Real Madrid geri aðra tilraun til að krækjaí leikmanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×