Enski boltinn

Jo og Ronaldinho færast nær City

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ronaldinho á leið frá Barcelona til Manchester City?
Ronaldinho á leið frá Barcelona til Manchester City?

Allt útlit er fyrir að brasilíski sóknarmaðurinn Jo sé á leið til Manchester City og þá er talið að Ronaldinho sé ekki langt undan. Stjórnarmaður City sagðist reikna með að Jo yrði kominn í ljósbláa búninginn á næstu dögum.

Jo er hjá CSKA Moskvu og verður hann líklega fyrsti leikmaðurinn sem Mark Hughes kaupir eftir að hann tók við liðinu. Hughes mun fá nægt fjármagn til leikmannakaupa í sumar.

Þá er Hughes víst mjög spenntur fyrir því að fá Ronaldinho í lið sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×