Bölvun 22. júní létt og heimsmeistararnir úr leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. júní 2008 19:32 Iker Casillas varði tvívegis í vítaspyrnukeppninni og var hetja Spánverja í leiknum. Nordic Photos / AFP
Spánverjar eru komnir áfram í undanúrslit EM 2008 eftir sigur á heimsmeisturum Ítala í vítaspyrnukeppni eftir markalausan og bragðdaufan leik. Spánverjar hafa þrívegis dottið úr leik á stórmóti í knattspyrnu þann 22. júní. Í öll skiptin eftir vítaspyrnukeppni í fjórðungsúrslitinum. En í dag varð breyting þar á og því má segja að bölvun þessa dags hafi verið létt fyrir spænska landsliðið. Iker Casillas varði tvívegis í vítaspyrnukeppninni og Gianluigi Buffon einu sinni. Það var svo Cesc Fabregas sem skoraði sigurspyrnu keppninnar og tryggði þar með sínum mönnum sigur í leiknum en hann hafði komið inn á sem varamaður í leiknum. Þar með eru heimsmeistararnir úr leik en síðast þegar að Spán vann sigur á Ítalíu í leik á stórmóti var á Ólympíuleikunum í Antwerpen árið 1920. Ítalir voru án Gennaro Gattuso og Andrea Pirlo sem voru báðir í banni en þeir Alberto Aquilani og Massimo Ambrosini tóku stöðu þeirra í byrjunarliðinu. Spánverjar stilltu upp sama liði og vann sigur á Rússlandi og Svíþjóð í fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar. Þetta þýddi að Cesc Fabregas mátti sætta sig við að sitja á beknum. Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill hvað marktækifæri varðar en leikurinn var þó harður og nóg af tæklingum og aukaspyrnum. Spánverjar gerðu tvívegis tilkall til vítaspyrnu í hálfleik, í bæði skiptin eftir brot Fabio Grosso, en varð ekki af ósk sinni. Spánverjar sóttu í sig veðrið eftir því sem á leið og áttu nokkrar marktilraunir. Þá hættulegustu átti David Silva en skot hans utan vítateigs fór naumlega fram hjá marki Ítalanna. Síðari hálfleikur fór rólega af stað en Spánverjar voru þó meira í sókn en þeir ítölsku. Þó var það Mauro Camoranesi sem komst næst því að skora er skot hans var varið af Iker Casillas á marklínu. Kollegi hans í ítalska liðinu, Gianluigi Buffon, komst þó nálægt því að missa varinn bolta í eigið mark. Marcos Senna átti skot að marki sem Buffon varði örugglega en missti svo boltann sem rann frá honum en hafnaði í stönginni, Buffon til mikillar sælu. Luca Toni hefur ekki átt góðu gengi að fagna á mótinu og það sýndi sig hvað best undir lok venjulegs leiktíma er hann rændi Fabio Grosso upplögðu færi með vonlausri tilraun til að skora með bakfallsspyrnu. Það var einnig dæmigert fyrir leikinn. Staðan því markalaus eftir venjulegan leiktíma og í þriðja sinn í fjórðungsúrslitunum er framlengt. Framlengingin hófst með miklum látum og hvort lið fékk sitt færi en án þess þó að ná að skora. Eftir það datt leikurinn aftur niður og því ekkert um annað að ræða en að láta úrslit leiksins ráðast í vítaspyrnukeppni. Gangur vítaspyrnukeppninnar (Spánverjar byrjuðu): 1-0 David Villa skoraði. 1-1 Fabio Grosso skoraði. 2-1 Santi Cazorla skoraði.Iker Casillas varði frá Daniele De Rossi. 3-1 Marcos Senna skoraði. 3-2 Mauro Camoranesi skoraði.Gianluigi Buffon varði frá Dani Güiza.Iker Casillas varði frá Antonio Di Natale. 4-2 Cesc Fabregas skoraði.
Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Sjá meira