Davíð Þór: Kíki í heimsókn til Auðuns Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2008 19:15 Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var vitanlega sáttur við 3-0 sigur sinna manna á Breiðabliki í dag. Úrslitin þýða að FH á enn möguleika á Íslandsmeistaratitlinum en þurfa að stóla að Fram nái hagstæðum úrslitum í Keflavík í lokaumferðinni á laugardaginn. Um leið þarf FH að vinna Fylki. „Það var frábært að vinna þennan leik sannfærandi og við erum mjög sáttir," sagði Davíð í samtali við Vísi eftir leik. „Mér fannst fyrri hálfleikurinn reyndar vera svolítið sérstakur. Við spiluðum ágætlega en mér fannst samt vanta smá kraft í okkur. Við náðum þó að skora þrjú mörk og þeir sköpuðu sér varla neitt. Við vorum svo skynsamir í seinni hálfleik og óheppnir að hafa ekki bætt við fleiri mörkum." Úrslit Íslandsmótsins gætu ráðist á markatölu ef FH vinnur Fylki og Keflavík og Fram gera jafntefli. Keflavík hefur eins marks forystu á FH í þeim efnum auk þess sem liðið hefur skorað fleiri mörk. „Ég neita því ekki að það hefði verið gott að fá fjórða markið því nú þurfum við að vinna með tveggja marka mun í Árbænum ef Fram nær jafntefli í Keflavík. Við gerum það þá bara ef til þess kemur." „Við erum staðráðnir í að vinna Fylki og ætlum okkur að setja eins mikla pressu á Keflvíkinga og við mögulega getum. En þetta er vissulega í þeirra höndum." Fyrrum liðsfélagi Davíðs hjá FH, Auðun Helgason, er nú leikmaður Fram sem mæta Keflvíkingum á laugardaginn. „Ég kíki í heimsókn til hans og lofa honum einhverju góðu ef þeir klára þetta fyrir okkur," sagði Davíð í léttum dúr.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira