Útsendarar margra liða á Laugardalsvellinum í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. maí 2008 14:37 Meðal annars verður vel fylgst með Pálma Rafni Pálmasyni í kvöld. Mynd/Vilhelm
Útsendarar margra liða, sér í lagi frá Englandi og Norðurlöndunum, verða á Laugardalsvellinum til að fylgjast með nokkrum íslenskum landsliðsmönnum. Samkvæmt heimildum Vísis er mikill áhugi fyrir Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, leikmanni Hannover 96 sem er nú í láni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Vålerenga. Hann hefur ekki fengið fast sæti í byrjunarliði Vålerenga og gæti því verið tregur til að semja við félagið sem vill þó halda honum. Það þykir þó nokkuð víst að hann muni ekki snúa aftur til Þýskalands og því er verið að fylgjast vel með hans framgangi. Þá verður einnig fylgst með Aroni Einari Gunnarssyni sem er á mála hjá AZ Alkmaar í Hollandi. Hann hefur hins vegar afar fá tækifæri fengið í aðalliði AZ og hefur hann margítrekað það að hann vilji fara til annars félags þar sem hann fengi að spila meira. Valsmennirnir Pálmi Rafn Pálmason og Birkir Már Sævarsson hafa einnig verið undir smásjá margra liða sem fá nú kjörið tækifæri til að sjá þá taka þátt í stóru verkefni. Undanfarna daga hafa fulltrúar norska úrvalsdeildarfélagsins Brann verið staddir hér á landi bæði til að fylgjast með leikjum í úrvalsdeildinni sem og starfi yngri flokka í mörgum félögum. Brann hefur góða reynslu af íslenskum knattspyrnumönnum og hefur því mikinn áhuga á að horfa líka til framtíðar í þeim efnum.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Sjá meira