Sjónvarpslið smitaði ekki ættbálk í Perú af flensu 28. mars 2008 10:52 Julio Cusurichi til vinstri vinnur við að vernda ættbálka og regnskóga. Hér er hann ásamt tveimur ættbálkahöfðingjum ættbálka í Perú sem kjósa einangrun án sambands við samfélög nútímans. MYND/AFP
Breskt sjónvarpsframleiðslufyrirtæki hefur neitað því að rannsóknarteymi á þess vegum í Perú hafi smitað einangraðan ættbálk af banvænni flensu. Embættismenn ríkisstjórnar Perú, hópar sem berjast fyrir réttindum einangraðra ættbálka og bandarískir vísindamenn segja að fjórir meðlimir ættbálksins hafi látist eftir að sjónvarpsframleiðendur heimsóttu þá. Talsmaður fyrirtækisins, Cicada Films, sagði að fólkið hefði ekki heimsótt einangraða svæðið sem um ræðir. Fréttavefur BBC greinir frá því að mennirnir á vegum Cicada hafi verið í Perú á síðasta ári við leit að tökustöðum fyrir nýja þáttaröð raunveruleikaþáttanna World's Lost Tribes sem sýndir eru á Disney stöðinni. Framleiðslufyrirtækið segir að framleiðandanum og leiðsögumanninum hefði verið gefið opinbert leyfi til að fara á öll þau svæði sem þeir heimsóttu í Manu National þjóðgarðinum. Í yfirlýsingu Cicada segir að þeir hafi ferðast stutta vegalengd frá bænum Yomibato og aðeins eftir boð innfæddra. Engin sönnunargögn séu um að hópurinn hafi smitað svæðið af sjúkdómi og dagsetningar sem settar séu fram passi ekki. „Framleiðandinn og leiðsögumaður hans heimsóttu ekki svæðið sem dauðsföllin eru sögð hafa átt sér stað og enginn sem þeir hittu hefur látist," segir í yfirlýsingunni. En ríkisstjórnin heldur því fram að mennirnir á vegum Cicada hafi farið inn á svæði sem alfarið eru vernduð. Fenamad réttindasamtök ættbálkanna segja að þá hafa hundsað viðvaranir og ferðast upp eftir á til afar einangraðs þorps. Bandarískur mannfræðingur sem hitti mennina í Peru segir að þeir hafi kvartað yfir að fyrsta svæðið sem þeir heimsóttu hafi verið of vestrænt og leitað eftir afskekktari stöðum. Mannfræðingar telja að um 15 einangraðir hópar eða ættbálkar búi án sambands við umheiminn á svæðinu. Einangrunin þýðir að ónæmiskerfi þeirra hefur ekki lært að bregðast við sjúkdómum sem eru algengir í minna einangruðum samfélögum. Ættbálkarnir kvarta gjarnan yfir því að timburfyrirtæki og olíuleitarmenn komi inn á land þeirra og dreifi sjúkdómum.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira