Enski boltinn

Gill segir útilokað að Ronaldo fari

Elvar Geir Magnússon skrifar

David Gill, stjórnarmaður hjá Manchester United, segir útilokað að Cristiano Ronaldo fari frá félaginu í sumar. Ronaldo hefur reglulega verið orðaður við Real Madrid.

„Við höfum ekki minnsta áhuga á að sleppa honum. Hann er hjá frábæru félagi, er að vinna titla og nýtur sín hér. Hví ætti hann að vilja fara?" sagði Gill.

Ronaldo á fjögur ár eftir af samningi sínum við United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×