Föngum sleppt til að berjast við eldana 24. október 2007 11:32 Slökkviliðsmenn berjast við elda í Del Dios hverfinu í Escondido í Kaliforníu. MYND/AFP
Slökkviliðsmenn sem berjast við skógareldana í Suður-Kaliforníu hafa fengið hjálp úr ýmsum áttum, meðal annars hefur föngum verið sleppt úr fangelsum í Kaliforníu, hjálp hefur borist frá Mexíkó auk annarra fylkja Bandaríkjanna. Eldarnir hafa eyðilagt meira en 161 þúsund hektara lands og er ekki búist við að takist að ráða niðurlögum þeirra fyrr en vindar snúast, eða eldarnir ná til sjós. Bruce Cartelli yfirmaður slökkviliðsins í San Diego sagði CNN að algjör eyðilegging blasi við á sumum stöðum í sýslunni, þar sem hundruð heimila hafi eyðilagst og margfalt fleiri skemmst. Hann segir eldana vera versta tilfelli sem hann muni eftir á 36 ára ferli sínum. Einn er látinn af völdum eldanna og 70 slasaðir og þykir með ólíkindum að ekki skuli hafa farið verr. Um hálf milljón manna hefur yfirgefið heimili sín. Veðurfræðingar spá því að Santa Ana vindunum lægi seinni partinn í dag, en þeir hafa ýtt undir eldana og náð allt að 44 metrum á sekúndu.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Sjá meira