Viðræður Íraka og Tyrkja fara út um þúfur Þórir Guðmundsson skrifar 27. október 2007 13:19
Viðræður milli stjórnvalda í Írak og Tyrklandi um leiðir til að koma í veg fyrir árásir kúrdískra skæruliða hafa farið út um þúfur. Tyrkneskar herflugvélar sjást nú á stöðugum eftirlitsferðum um landamærin við Írak. Nú eru eitt hundrað þúsund tyrkneskir hermenn við landamæri Íraks, með fallbyssur, skriðdreka, þyrlur og önnur þungavopn. Herflugvélar sjást í stöðugum eftirlitsferðum við landamærin að elta uppi kúrdíska skæruliða. Fréttir hafa borist um að þær hafi varpað sprengjum á kúrdíska skæruliða Tyrklandsmegin landamæranna í gær. Talið er að skæruliðar Verkamannaflokks kúrdistans - PKK - á þessum slóðum séu um fimm þúsund, þar af þrjú þúsund í Írak. Spenna magnast stöðugt. Í gærkvöldi fóru viðræður við stjórnvöld í Bagdad út um þúfur þegar tyrkneska stjórnin hafnaði tillögu Íraksstjórnar um að loka skrifstofu kúrdískra skæruliða. Rúmlega þrjátíu þúsund manns hafa látið lífið í ofbeldi í Kúrdahéruðum Tyrklands síðan PKK skæruliðar hófu baráttu sína gegn stjórnvöldum í Tyrklandi árið 1984. Erdogan forsætisráðherra Tyrklands gagnrýndi vestræn ríki fyrir afstöðu sína gagnvart málinu. Hann sagði að Tyrkir væru að berjast við hryðjuverkamenn og væntu því aðstoðar vina sinna. Erdogan fer til Bandaríkjanna þann fimmta nóvember til viðræðna við Bush forseta. Talið er að í þeirri ferð muni Bandaríkjamenn gera lokatilraun til að fá Tyrki ofan af því að ráðast inn á Kúrdasvæðin í Írak.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira