Létu innbrotsþjófinn taka til Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 19. október 2007 15:26 MYND/Getty Images
Hjón í Bandaríkjunum vissu nákvæmlega hvað þau áttu að gera við innbrotsþjóf sem þau gripu glóðvolgan þar sem hann gekk ránshendi um heimili þeirra. Þau miðuðu á hann byssu á meðan þau létu hann skila mununum og þrífa eftir sig. Adrian og Tiffany McKinnon voru að koma úr vikuferðalagi þegar þau komu að heimili sínu nálægt Montgomery í Alabama í rúst. Tiffany var miður sín og maður hennar ráðlagði henni að fara til systur sinnar á meðan hann athugaði hvaða munir hefðu verið teknir. En þegar hann gekk inn í næsta herbergi mætti hann þjófnum, sem var með hatt Adrians á höfðinu. Húsbóndinn beindi byssu að höfði hans og lét hann sitja þar til hann ákvað hvað hann ætti að gera. Þar næst lét hann Tajuan Bullock þrífa eftir sig dót sem hann hafði hent á gólfið úr skúffum og hillum. Þegar lögreglan kom á vettvang beið þeirra óvænt yfirlýsing. Þjófurinn kvartaði yfir því að hafa þurft að þrífa heimilið á meðan honum var ógnað með byssu. Lögreglan mun að sögn húsbóndans hafa hlegið af þjófnum og sagt að flestir aðrir hefðu líklega skotið hann til bana. Bullock var handtekinn fyrir þjófnað og innbrot. Vanalega eru innbrotsþjófar fljótir að athafna sig inni á heimilum fólks þegar það er fjarverandi, og koma svo þýfinu eins fljótt og mögulegt er í verð.
Mest lesið Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Sjá meira