Innlent

Stakk mann í bakið með skærum

Kona á fimmtugsaldri stakk mann á sextugsaldri í bakið með skærum, í fjölbýlishúsi í Vesturborginni upp úr miðnætti. Maðurinn forðaði sér yfir í næsta stigagang og kallaði á hjálp.

Lögregla flutti manninn þegar á Slysadeild og reyndist skurðurinn fjögurra sentímetra langur, en ekki hættulega djúpur. Maðurinn slapp því með skrekkinn þrátt fyrir talsvert sár og blóðmissi.

Konan og tveir karlmenn, sem voru í íbúðinni með henni, voru handtekin og gista nú fangageymslur þar til þau verða yfirheyrð í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×