Leiðtogar Kóreu semja um frið Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 4. október 2007 10:59 Roh Moo-hyun forseti Suður Kóreu og Kim Yong-il leiðtogi Norður Kóreu eftir samkomulagið um frið og efnahagslegar umbætur í Pyongyang í morgun. MYND/AFP
Roh Moo-hyun forseti Suður Kóreu og Kim Yong-il leiðtogi Norður Kóreu undirrituðu í dag friðaryfirlýsingu eftir þriggja daga sögulegan fund í Pyongyang í Norður Kóreu. Þeir fóru fram á alþjóðlegar viðræður um milliríkjasamning sem koma á í stað vopnahlésins, sem batt enda á Kóreustríðið árið 1953. Í gær samþykkti Norður Kórea einnig að falla frá kjarnorkuáætlun landsins sem valdið hefur miklum taugatitringi á alþjóðavísu. Sérstök nefnd sem fjallaði um málið staðfesti að fylgt yrði áætlun um að aftengja kjarnorkuframleiðslustöðvar samkvæmt tímatöflu sem yfirvöld samþykktu. Leiðtogarnir fögnuðu samkomulaginu með handabandi og skál eftir undirritun yfirlýsingarinnar sem er í átta liðum. Kim Yong-Il notaði tækifærið og blés á getgátur í fjölmiðlum um slæma heilsu sína. Hann væri hvorki með sykursýki né hjartveikur. Leiðtogar ríkjanna tveggja hafa einungis hist tvisvar sinnum á síðustu 50 árum, síðast árið 2000. Roh forseti sagði við fjölmiðla fyrir fundinn að markmið hans væri að ræða frið á milli ríkjanna og þróun efnahags.FriðaryfirlýsingÍ friðaryfirlýsingunni segir að bæði löndin séu sammála um að enda núverandi vopnahlésástand og byggja upp varanlegt friðarferli. Til þess þurfa aðildarlönd vopnahléssamningsins frá 1953, Bandaríkin, Kína og Norður Kórea, að koma saman. Suður Kórea undirritaði ekki samninginn á sínum tíma og er því tæknilega enn í stríði við Norður Kóreu.Spenna vegna hernaðar verði milduð og deilur við samningagerð og samskipti verði útkljáðar. Komið verði á sameiginlegum fiskveiðisvæðum við umdeild mörk landanna vestan við Kóreuskaga. Þetta er gert til að forðast óvænt vopnuð átök. Fundað verði í Pyongyang í nóvember til að finna leiðir til að efla efnahagslega samvinnu.Suður Kóreubúi fylgist með fréttum af fyrri leiðtogafundi ríkjanna þegar Kim Jong-il og Roh Moo-hyun hittust árið 2000.Vöruflutningar yfir landamærin munu hefjast aftur samkvæmt yfirlýsingunni, eftir hálfrar aldar hlé.Í samningnum er gert ráð fyrir reglulegum fundum á milli landanna tveggja, þó engar tímasetningar hafi verið settar í þeim efnum.Samvinna verði efld í tengslum við tungumál, menntun, tækni, menningu, íþróttir og í félagsmálum. Opnaður verði vegur á milli Seoul og Paekdu fjalls til að leyfa sunnanmönnum að heimsækja fjallið.Þá verða fleiri fundir skipulagðir til að koma á endurfundum á milli fjölskyldumeðlima sem voru aðskildir við skiptingu skagans.Fréttaskýrandi BBC varar þó við of mikilli bjartsýni eftir fundinn nú þrátt fyrir sögulegan samning. Svipuð bjartsýni hafi einkennt leiðtogafundinn árið 2000 en mörgum finnst lítið hafa breyst síðan þá.KjarnorkusamningurinnFulltrúar í sex landa í nefnd um kjarnorkuáform Norðanmanna skýrðu frá því í gær að Pyongyang hefði opinberlega samþykkt að aftengja kjarnakljúfinn í Yongbyon ásamt öðrum kjarnorkusvæðum og að upplýsa um alla þætti kjarnorkuáætlunarinnar fyrir lok þessa árs.Yongbyon er stærsti kjarnakljúfur Norður Kóreu. Honum var lokað fyrr á árinu í skiptum fyrir aðstoð en það var fyrsti hluti samningsins.Lið sérfræðinga með Bandaríkjamenn í fararbroddi fer til Norður Kóreu á næstu tveimur vikum til að fylgja samningnum eftir.Næsta áríðandi skref samningsins, þar sem Norðanmenn framselja kjarnorkubirgðir sínar, er áformað á næsta ári.Viðbrögð við samkomulaginu Suður Kóreumenn hafa gjarnan krafist þess að Norður Kórea verði beitt refsiaðgerðum.George Bush Bandaríkjaforseti hefur fagnað samningnum. Japanar sem eiga fulltrúa í sex-landa nefndinni, eru þó varkárir í yfirlýsingum, en í dag samþykkti stjórnarflokkur japanska þingsins framlengingu á viðskiptaþvingunum við Norður Kóreu vegna lítils árangurs í samningaviðræðum vegna japanskra ríkisborgara sem rænt var af Pyongyang. KjarnorkusprengjanNorður Kórea gerði sína fyrstu kjarnorkutilraun í október árið 2006. Hún vakti hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins og var fordæmd af flestum ríkjum heims.Christopher Hill fulltrúi Bandaríkjamanna í samninganefnd öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna málsins sagði meðal annars að Norður Kórea yrði að velja á milli þess að eiga kjarnavopn, eða framtíð. Það gæti ekki átt bæði.
Mest lesið Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Innlent Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Innlent Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Innlent Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show Erlent Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Sjá meira