Erlent

Segir þúsundir látna í Mjanmar

Ofursti úr stjórnarhernum í Mjanmar segir að þúsundir manna hafi fallið í árásum hersins á stjórnarandstæðinga undanfarna daga. Norskur blaðamaður, sem er staddur í frumskóginum á landamærum Tælands og Mjanmars, segir að ofurstinn hafi neitað að ráðast á munka og sé nú flúinn með fjölskyldu sína. Hann sækist eftir hæli í Noregi.

Ibrahim Gambari sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Mjanmar hitti í morgun leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem er í stofufangelsi. Gambari kom til Yangon stærstu borgar Mjanmar í morgun. Diplómetar í Yangon segja að hann hafi þegar hitt Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Nánari fréttir hafa ekki fengist af þeim fundi. Gambari ræddi við herforingjana sem stjórna Mjanmar í gær í höfuðborginni Næpídav. Ekkert hefur spurst út um viðræður Gambaris við herforingjana, en líklegt er að hann hafi rætt við Tan Shwe, hershöfðingjann sem talinn er valdamestur í stjórn landsins. Stjórnvöld í Japan sendu í dag sendifulltrúa til Mjanmar til að þrýsta á að dauði japansks myndatökumanns á miðvikudag verði rannsakaður. Á myndum af atvikinu má sjá að hermaður skaut hann af stuttu færi. Engar áreiðanlegar tölur hafa borist af heildarfjölda látinna. Stjórnvöld segja að tíu manns hafi látið lífið í átökum undanfarinna daga en stjórnarandstæðingar segja að þeir séu miklu fleiri. Fáir eru nú á götum Yangon og hvergi sjást munkar, sem leiddu mótmælaaðgerðirnar, enda hafa margir þeirra verið handteknir og aðrir lokaðir inni í klaustrum sínum sem eru umkringd gaddavír.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×