Vilja banna nekt á Everest Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 27. september 2007 10:34 Það kostar á bilinu 600 þúsund til tveggja milljóna að klífa Everest fjall, sem er gífurleg fjárhæð í Nepal þar sem mánaðarlaun eru tæpar fimmtán þúsund krónur. MYND/AFP
Samtök fjallgöngugarpa í Nepal vilja banna nekt og tilraunir til ruddalegra meta á Everest fjalli, stærsta fjalli heims. Nepalskur fjallgöngumaður setti met í hæstu nektarsýningu á síðasta ári þegar hann beraði sig í nokkrar mínútur á toppi fjallsins, í 8.848 metra hæð og tíu stiga gaddi. Ang Tshering forseti fjallgöngusamtaka landsins segir að strangar reglur verði að gilda til að aftra fjallgöngumönnum frá slíkum tilraunum. Önnur umdeild tilþrif til að setja met á tindinum er meðal annars tilraun Hollendings til að komast á toppin eingöngu klæddur stuttbuxum. Íbúar við Everest tilbiðja fjallið sem Guð og samtök fjallgöngumanna hafa farið fram á að ríkisstjórnin banni ruddalegar brellur á því. Everest fjall hefur löngum verið aðdráttarafl þeirra sem vilja setja met, meðal annars elsta fjallgöngumanninum sem var 71 árs, yngsta fjallgöngumanninum sem var 15 ára, fyrsta einfætta fjallgöngumanninum og fyrsta blinda fjallgöngumanninum. Árið 2005 gifti síðan nepalskt par sig á tindi fjallsins. Frá því fjallið var fyrst klifið af Edmund Hillary og Tenzing Norgay árið 1953 hafa þúsundir reynt að komast upp á þennan glæsta tind.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira