Heimilin skulda 86 milljarða í lánum í erlendri mynt 16. júlí 2007 19:31
Heimilin í landinu skulda áttatíu og sex milljarða króna erlendri mynt en þetta er tólf prósent af heildarlánum heimilanna. Lánin geta stórhækkað ef gengi krónunnar fellur og hefur seðlabankastjóri varað við þeim. Þeim Íslendingum sem taka lán í erlendri mynt fjölgar en í maímánuði voru lán í erlendri mynt tæp tólf prósent af lánum heimilanna. Í ársbyrjun 2004 voru þau aðeins rúm fjögur prósent. Seðlabankastjóri lýsti fyrr í mánuðinum yfir áhyggjum af fjölgun þeirra einstaklinga sem velja að taka lán í erlendir mynt. Hætta væri á að heimilin vanmætu þá áhættu sem felist í lánum í erlendri mynt. Lánin væru álitleg á pappírum en ekki væri allt gull sem glói. Í nýjasta hefti Peningamála sem Seðlabankinn gefur út kemur fram að gjaldmiðlasamsetning hafi breyst síðasta hálfa árið. Um áramótin voru lán til heimila svissneskum frönkum og japönskum jenum tæp 50% gengistryggðra útlána hjá þremur stærstu viðskiptabönkunum en um 85% í maímánuði. Krónan hefur verið sterk undanfarið. Sveiflur á gengi hennar hafa áhrif á greiðslubyrði lánanna en lán í erlendri mynt eru viðkvæmari fyrir sveiflum en til að mynda verðtryggð íbúðalán sem tekin eru hér á landi. Þeir sérfræðingar á fjármálamarkaðnum sem að fréttatofan ræddi við í dag voru flestir sammála um að lán í erlendri mynt væru hagstæðari en innlend lán til lengri tíma litið. Miklar sveiflur á gengi krónunnar gætu hins vegar reynst heimilunum erfiðar þar sem einstaklingar ólíkt fyrirtækjum hefðu yfirleitt allar sínar tekjur í íslenskum krónum.
Mest lesið „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira