Erlent

Síðasta myndin af Madeleine birt

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Síðasta myndin sem vitað er að tekin var af Madeleine áður en hún hvarf.
Síðasta myndin sem vitað er að tekin var af Madeleine áður en hún hvarf. MYND/AP
Fjölskylda Madeleine McCann hefur birt síðustu myndina sem tekin var af telpunni áður en hún hvarf í Portúgal. Á henni er Maddie brosandi og að dingla fótunum ofan í sundlaug með föður sínum og Sean, yngri bróður. Kate McCann móðir stúlkunnar tók myndina daginn sem henni var rænt.

Nú eru þrjár vikur liðnar frá mannráninu. Kate og Gerry McCann hafa farið á fund breska sendiherrans í Portúgal og bresku lögreglunnar. Þau eru afar vonsvikin að leitin skuli ekki hafa borið árangur er haft eftir frænda Madeleine á BBC.

Þúsundir gulra og grænna armbanda hafa nú verið sett á markað í Bretlandi til styrktar herferðinni til að finna Maddie. Guli liturinn stendur fyrir gulu borðana sem bundnir hafa verið í þúsundavís í heimabæ stúlkunnar og grænn er portúgalski liturinn fyrir von. Armböndin eiga einnig að halda hvarfi stúlkunnar áfram í umræðunni.

Sky fréttastofan leitaði til fyrrum leynilögreglumanns sem sérhæfði sig í glæpum af þessu tagi. Mark Williams-Thomas fór til Praia da Luz örfáum dögum eftir að stúlkan hvarf. Hann lagði áherslu á að portúgalska lögreglan starfaði eftir öðrum aðferðum.

Hann gagnrýndi rannsóknina þrátt fyrir að vera vongóður um farsæla útkomu. Þau atriði sem Mark taldi að betur hefðu mátt fara voru meðal annars varðveisla vettvangs þar sem hefði verið hægt að ná DNA sýnum. Auk þess sagði hann almenning lítið, ef nokkuð, hafa verið spurðan út í atburði.

Rétt við íbúðina væri til dæmis eina matvöruverslun bæjarins, þar hafi lögregla ekki talað við fólk þá fjölmörgu daga sem hann var á svæðinu. Þrátt fyrir að líklegt væri að mannræninginn hefði komið þangað og keypt drykki eða mat.

Öryggismyndavél matvöruverslunarinnar hefði getað gegnt veigamiklu hlutverki. Hún hafi hins vegar verið biluð síðustu fimm vikur. Í Bretlandi gegna slíkar myndavélar mjög veigamiklu hlutverki og eru staðsettar nánast á hverju götuhorni. Í Portúgal er því hins vegar ekki að fagna.

Að lokum sagði Mark aðferðir portúgölsku lögreglunnar ekki eins opnar almenningi og í Bretlandi og því fengi lögregla á staðnum minni upplýsingar frá almenningi en gengur og gerist í Bretlandi.


Tengdar fréttir

Breti grunaður um að hafa rænt Madeleine

Portúgalska lögreglan hefur handtekið mann sem grunur leikur á að tengist hvarfinu á Madeleine McCann, fjögurra ára gamalli telpu sem hefur verið saknað í tólf daga. Maðurinn er breskur ríkisborgari og býr hann með móður sinni skammt frá hótelinu sem Madeleine var rænt af.

50 milljónir hafa heimsótt vefsíðu Madeleine

Vefsíða sem sett var á laggirnar til að hjálpa við leitina á Madeleine McCann hefur fengið meira en 50 milljónir heimsókna. Fjölþjóðleg fyrirtæki á borð við BP, McDonalds og alþjóðlega matvöruverslunarkeðjan Carrefour styðja leitina með því að dreyfa myndum í Evrópu af stúlkunni. Maddie var rænt í Portúgal 3. Maí síðastliðinn og varð fjögurra ára í síðustu viku.

Murat segir gruninn hafa eyðilagt líf sitt

Robert Murat sagði í viðtali við Sky fréttastofuna í kvöld að grunurinn um að hann tengdist mannráni Madeline McCann hefði eyðilagt líf hans. Hann sagðist hafa verið gerður að blóraböggli af lögreglu í málinu. Murat var handtekinn í gær og yfirheyrður í 18 klukkustundir. Hann var látinn laus í dag vegna skorts á sönnunargögnum gegn honum.

Bretanum hefur verið sleppt

Portúgalska lögreglan greindi frá því nú síðdegis að ekki væru nægar vísbendingar til að ákæra breskan mann vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn var handtekinn í gærkvöld en hann er búsettur nærri hótelinu í Praia De Luz á Algarve þaðan sem hin fjögurra ára gamla telpan var numin á brott.

Faðir Madeleine aftur til Bretlands

Faðir Madeleine litlu sem rænt var í Portúgal í byrjun mánaðarins er nú kominn til Bretlands í stutta heimsókn. Gerry McCann mun nota ferðina til að hitta skipuleggjendur sjóðs vegna leitarinnar að stúlkunni. Þá mun hann undirbúa frekari dvöl í Portúgal og sækja myndir og myndbönd af Maddie til nota fyrir herferðina.

Tveir yfirheyrðir aftur vegna mannráns Madeleine

Portúgalska lögreglan er nú að yfirheyra tvo aðila vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Fólkið mun vera yfirheyrt sem vitni og hefur áður verið kallað til yfirheyrslu vegna málsins. Á fréttavef Sky segir að Robert Murat sé ekki annar aðilanna. Kate og Gerry foreldrar Madeleine eru nú í Fatima í Portúgal þar sem þau heimsækja heilagt hof.

Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine

Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum.

Madeleine McCann enn ófundin

Enn hefur ekkert spurst til litlu bresku telpunnar sem rænt var á Algarve í Portúgal fyrir viku síðan. Foreldrar hennar segjast enn vongóðir um að hún finnist heil á húfi.

Tilfinningaþrungin stund föður Madeleine í heimabænum

Það var tilfinningaþrungin stund þegar Gerry McCann faðir Madeleine heimsótti torgið í Rothley heimabæ fjölskyldunnar í Leicestershire. Nú eru 19 dagar frá því stúlkan hvarf í sumarleyfisbænum Praia de Luz í Portúgal. Torgið í Rothley er alþakið gulum borðum sem íbúar bæjarins hafa bundið á tré, bekki, umferðarmerki og á grasflötina sjálfa. Gerry er nú kominn aftur til Portúgal.

Portúgal: Meiriháttar upplýsingar í rannsókn tilkynntar

Sýnt verður beint frá blaðamannafundi Lögreglunnar í Portúgal klukkan 17.30 að íslenskum tíma á visir.is. Búist er við að upplýst verði um meiriháttar umskipti í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Madeleine McCann. Stúlkan var numin á brott af hótelherbergi sínu fyrir viku og hefur leit staðið yfir síðan. Fundurinn fer fyrst fram á portúgölsku og síðan ensku.

Kallað eftir ljósmyndum frá Praia de Luz

Breska lögreglan hefur biðlað til almennings um að fá sendar myndir af sumarleyfisstaðnum Praia de Luz og nágrenni í Portúgal. Óskað er eftir myndum á tölvutæku formi frá tveggja vikna tímabili áður en Madeline McCann var rænt þann 3. maí. Helst eru það myndir með ókunnugum í bakgrunni sem lögreglan er á höttunum eftir.

Fara ekki heim fyrr en Maddie er fundin

Foreldrar Madeleine McCann, litlu telpunnar sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum, eru viss um að dóttir þeirra sé heil á húfi og ætla ekki að snúa aftur til Bretlands fyrr en hún er komin í leitirnar. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem lofað hafa þeim fé sem varpað geta ljósi á hvarf Madeleine.

Beckham biðlar til mannræningja

David Beckham mun í dag biðla til mannræningja hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf í Portúgal í síðustu viku. Eftir æfingu með liði hans Real Madrid á Spáni í dag mun hann taka upp skilaboð segir á fréttavef Sky.

Túlkur í yfirheyrslu vegna hvarfs Madeleine

Fréttastofa Sky greindi frá því nú rétt í þessu að maður hefði verið færður til yfirheyrslu á lögreglustöð í Portúgal vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Verið er að leita í húsi sem er stutt þaðan sem hin þriggja ára gamla stúlka hvarf. Maðurinn mun vera túlkur og hafði sagt fólki að hann væri að aðstoða lögregluna við rannsóknina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×