Aukinn viðbúnaður í Rangún 26. október 2007 12:36
Vopnaðir lögreglumenn umkringdu klaustur í Rangún höfuðborg Búrma í dag og á götum borgarinnar varð vart við herta öryggisgæslu. Í gær ræddu fulltrúar herforingjastjórnarinnar í Búrma við helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Mánuður er liðinn síðan lögregla og her í Búrma barði niður uppreisn Búddamunka og almennings á götum Rangún. Að auki er búddískur helgidagur og yfirvöld ætla sér greinilega að koma í veg fyrir að mótmæli geti hafist á ný. Vopnaðir lögreglumenn gæta klaustra og hofa í borginni og sjást víða á götuhornum. Engin merki voru þó um mótmæli. Í gær ræddi ráðherra verkalýðsmála við Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hún hefur verið í stofufangelsi með hléum undanfarin átján ár. Ríkissjónvarpið í Búrma sýndi myndir af fundinum án hljóðs. Ráðherrann, Aung Kyi, hefur orð á sér fyrir hófsemi og hefur verið tilnefndur til viðræðna við Suu Kyi fyrir hönd herforingjastjórnarinnar. Þó að ekki berist fréttir af mótmælaaðgerðum í Búrma þá minna búrmískir útlagar og stuðningsmenn þeirra enn á baráttuna fyrir lýðræði í Búrma. Þannig mótmælti hópur fólks í dag fyrir utan sendiráð Búrma í Maníla á Filippseyjum. Ibrahim Gambari, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart Búrma, er núna í Japan að ræða við ráðamenn um framhaldið. Hann ætlar að fara aftur til Búrma í byrjun nóvember og segist vonast til að komast þangað heldur fyrr en síðar.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira