Tuttugu og einn sakfelldur í Madrídarmáli 31. október 2007 12:48 Hinir ákærðu hlýða á dómarana lesa upp úrskurði sína en það tók alllangan tíma vegna umfangs málsins. MYND/AP
Dómstóll á Spáni sakfelldi 21 af 28 mönnum sem ákærðir voru fyrir aðild að hryðjuverkunum í Madríd á Spáni í mars 2004. Nærri tvö hundruð manns týndu lífi í sprengjuárásum á lestarstöð í borginni og hátt í tvö þúsund særðust. Marokkóbúinn Jamal Zougam hlaut yfir 40 þúsund ára dóm þrátt fyrir að spænsk lög geri ráð fyrir að menn afpláni í mesta lagi 40 ár. Spánverjinn Emilio Suarez var einnig sakfelldur og hlaut jafnframt mörg þúsund ára dóm. Sjö mannanna voru sýknaðir af aðild að málinu, meðal annar Rabei Osman Sayed Ahmed, sem einnig gekk undir nafninu Egyptinn Mohamed, en hann situr í fangelsi á Ítalíu fyrir aðild að hryðjuverkasamtökum. Nítján hinna ákærðu eru arabar - flestir frá Marokkó. Hinir níu eru Spánverjar. Allir lýstu yfir sakleysi sínu fyrir dómi. Mikill öryggisviðbúnaður var við dómshúsið í Madríd í morgun þegar hinir ákærðu voru fluttir þangað til að hlýða á dómsorð. Dómarinn byrjaði á því að lesa upp forsendur dómsins áður en hann hóf að kveða hann upp yfir hverjum fyrir sig. Dómarinn í málinu kvað einnig upp þann úrskurð að spænsku aðskilnaðarsamtökin ETA hefðu ekki komið að árásunum, en stjórn íhaldsmanna á Spáni kenndi þeim um þær skömmu eftir tilræðin. Þær upplýsingar reyndust ekki réttar og leiddi það til þess að stjórnin féll í kosningum skömmu síðar og sósíalistar komust til valda á Spáni. Mennirnir sem ákærðir voru eru sagðir hafa tilheyrt íslömskum uppreisnarhópi sem studdist við hugmyndafræði al-Qaida en tengdist samtökunum ekki beint. Sjö menn sem taldir voru höfuðpaurar í árásunum sprengdu sjálfa sig í loft upp þegar lögregla hugðist taka þá fasta í Madríd þremur vikum eftir árásirnar.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Innlent Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Fleiri fréttir Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Sjá meira