Íslenski landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina sem gerði 1-1 jafntefli gegn Atalanta í dag. Þetta var fyrsti leikur Reggina í deildinni en Emil var tekinn af velli á 69. mínútu leiksins.
Áður hafði hann verið nálægt því að leggja upp mark en Edgar Barreto fór illa að ráði sínu og klúðraði færinu.