Fagnaðarlæti við komu Bhutto til Pakistans Þórir Guðmundsson skrifar 18. október 2007 12:42
Þúsundir manna fögnuðu Benasír Bhutto við heimkomuna til Pakistans, eftir átta ár í útlegð. Benasír Bhutto hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í Bretlandi síðan 1999. Hún hyggst leiða flokk sinn, Þjóðarflokk Pakistans, í kosningabaráttu á næstunni. Bhutto hefur tvisvar áður verið forsætisráðherra og nýtur mikillar hylli í heimalandinu, eins og sjá mátti við komu hennar til Karachi í morgun. Talið er að Bhutto hafi náð samkomulagi við Pervez Musharraf forseta um að þau muni deila með sér völdum, hann sem forseti og hún sem forsætisráðherra, nái hún meirihluta á þingi í janúar. Þessi samvinna Musharrafs og Bhutto er þeim mun merkilegri, að herinn, sem hann hefur stýrt síðustu árin, lét taka föður hennar, Zulfikar Ali Bhutto, af lífi árið 1979. Öfgahópar múslima hafa hótað henni lífláti, enda er Bhutto holdgervingur þeirrar stefnu að stýra þessu 170 milljóna manna múslimaríki í átt til aukins frjálsræðis og samvinnu við vestræn lýðræðisríki. Lögregla lokaði öllum götum sem hún átti að aka eftir frá flugvellinum og sprengjuleitarsérfræðingar hafa farið yfir öll svæði sem hún kemur nálægt. Hún ætlaði fyrst að fara að gröf Jinnah, stofnanda Pakistans, fimmtán kílómetra leið sem búist er við að taki bílalest Bhuttos mestallan daginn að aka.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Fleiri fréttir Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Sjá meira