Bhutto fagnað við komu í heimaþorp sitt Þórir Guðmundsson skrifar 27. október 2007 13:16
Benazir Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans heimsótti heimaþorp sitt í dag, í fyrsta sinn eftir komuna til Pakistans. Um fjögur þúsund stuðningsmenn hennar tóku á móti henni. Hún fór meðal annars að gröf föður síns, Zulfíkars Ali Bhutto, og dreifði rósablöðum yfir hana. Faðir hennar var fyrsti kjörni forsætisráðherra Pakistans, en herforingjastjórn steypti honum af stóli árið 1977 og lét síðar taka hann af lífi. Benazir Bhutto hefur tvisvar orðið forsætisráðherra og vonast til að endurheimta völdin í kosningum í janúar. Bhutto hefur að mestu haldið sig á heimili sínu í Karachi síðan hún kom heim fyrir níu dögum. Alls létust 143 stuðningsmenn hennar þegar reynt var að ráða hana af dögum strax eftir heimkomuna. Þetta er því fyrsta ferð hennar út fyrir Karachi. Ferðin er táknræn, því Bhutto fjölskyldan kemur frá Larkana svæðinu í Sindh og þar er hennar pólitíska bakland. Lögregla í Pakistan sagði í gær að framfarir hefðu orðið í rannsókn hennar á tilræðinu við Bhutto, en vildu ekki segja nánar frá þeim. Annars staðar í Pakistan var fólk áminnt um hversu ótryggt ástandið er í landinu. Her réðst til atlögu við harðlínuklerk sem hafði tekið fjóra pakistanska hermenn í gíslingu og látið taka þá af lífi fyrir framan mannfjölda.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira