Friðargæsluliðar féllu í Darfur Þórir Guðmundsson skrifar 1. október 2007 12:03
Tíu friðargæsluliðar Afríkusambandsins létu lífið í árás skæruliða í Darfur í Súdan um helgina. Um eitt þúsund skæruliðar sem tilheyra Frelsisher Súdans réðust á stöðvar friðargæsluliða með hríðskotabyssum, sprengjuvörpum og eldflaugum. Árásin hófst á laugardagskvöld og stóð alla nóttina. Undir lokin voru friðargæsluliðarnir umkringdir og leituðu skjóls á meðan skæruliðarnir stálu öllu steini léttara úr búðum þeirra. Stjórnarherinn skarst í leikinn í gærmorgun og hjálpaði gæsluliðum að komast burt - en síðdegis í gær mátti sjá stjórnarhermenn ræna því sem eftir var á staðnum. Friðargæsluliðar Afríkusambandsins komu til Darfur fyrir þremur árum til að vernda íbúa héraðsins gegn árásum skæruliða. En skæruliðar andvígir stjórnvöldum segja að gæsluliðarnir hafi smám saman snúist á sveif með stjórnvöldum. Síðar í þessum mánuði eiga samningaviðræður að hefjast um lausn deilunnar í Darfur, og eins og svo oft þá reyna andstæðar fylkingar að treysta stöðu sína áður. Árásin á friðargæsluliðana kom í kjölfar tveggja vikna sóknar stjórnarhersins gegn uppreisnarmönnum í Frelsisher Súdans.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira